Heimildamyndasýning á vegum Amnesty International

Kæru félagar,

Nú, í sumarbyrjun, mun Íslandsdeild Amnesty International sýna þrjár heimildarmyndir þriðjudaginn 24. maí, kl. 20. Allar heimildarmyndirnar eru tengdar baráttunni gegn ofbeldi í garð kvenna. Myndirnar, sem eru á dvd-formi, verða sýndar á tjaldi í sýningarsal á þriðju hæð Alþjóðahússins að Hverfisgötu 18, 101 Reykjavík (skáhallt á móti Þjóðleikhúsinu).

Sýndar verða þessar heimildarmyndir:

Ciudad Juarez and Chihuahua: Search for Justice – heimildarmynd um mannshvörf og morð á ungum konum í Mexíkó, sem stjórnvöld gera fátt til að stöðva.

Lives blown apart – heimildarmynd um áhrif stríðsátaka á líf kvenna.

Loks verður sýnd heimildarmyndin Sudan: human rights under fire um mannréttindabrot í borgarastyrjöldinni.

Myndirnar taka alls um 1 klst í sýningu og eru með ensku tali. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Við viljum hvetja sem flesta Amnesty félaga, og aðra sem hafa áhuga á mannréttindum, til að mæta. Aðgerðahópur 1 hjá Íslandsdeildinni hefur veg og vanda að undirbúningi sýningarinnar.

Mætum öll!