Íran: Baráttukona fyrir mannréttindum í hættu á að vera tekin af lífi

Baráttukonan Sharifeh Mohammadi er í hættu á að vera tekin af lífi. Hún var handtekin í desember 2023 og  dæmd til dauða fyrir friðsamlega mannréttindabaráttu af dómstóli í Rasht í Íran í júní 2024. Hún studdi kvenréttindi ásamt því að styðja við afnám dauðarefsingarinnar og réttindi verkafólks.  

Réttarhöldin voru ósanngjörn og ásakanir hennar um pyndingar og aðra illa meðferð í haldi voru aldrei rannsakaðar.  

Írönsk yfir­völd hafa beitt dauðarefs­ing­unni sem kúgun­ar­tóli í kjölfar uppreisn­ar­innar fyrir rétt­indum kvenna í þeim tilgangi að bæla niður mótmæli og skapa ótta.   

SMS-félagar krefjast þess að Sharifeh Mohammadi verði umsvifalaust leyst úr haldi án skilyrða og að dauðadómurinn verði felldur úr gildi þar sem hún er einungis í haldi fyrir friðsamleg mannréttindastörf.