Íran: Íranskur Kúrdi á yfir höfði sér dauðadóm

Arsalan Khodkam hlaut dauðadóm fyrir „njósnir“ eftir óréttlát réttarhöld sem stóðu yfir í 30 mínútur. Dómurinn var byggður á játningu sem náð var fram með pyndingum. Hann hefur ekki fengið að velja sér lögfræðing. Dauðadómur fyrir njósnir brýtur gegn alþjóðalögum. 

Skráðu þig í sms-aðgerðanetið hér! Sendu svo AKALL í númerið 1900 til að skrifa undir málið.

Fjölskylda Arsalan Khodkam hefur frá árinu 2018 reynt að vekja athygli á óréttlátum dómi og hvatt ýmsar ríkisstofnanir til að grípa inn í án árangurs. 

Arsalan Khodkam var handtekinn 23. apríl 2018 á herstöð í Urumieh þar sem hann starfaði sem liðsforingi í Írönsk­u bylt­inga­vörðunum (IRGC). Hann var sakaður um njósnir fyrir Kúrdíska Lýðræðisflokkinn í Íran (KDPI) og átti að hafa aðstoðað flokkinn í vopnuðum aðgerðum þeirra gegn Revolutionary Guards. Arsalan neitar þessum ásökunum. Samkvæmt upplýsingum Amnesty International hafði hann samskipti við ættingja sinn sem er meðlimur í Kúrdíska Lýðræðisflokknum í eitt skipti til að upplýsa hann um fyrirhugaða áætlun Írönsk­u bylt­inga­varðanna um að brjóta á bak aftur friðsamleg mótmæli í Bane, kúrdísku svæði.

SMS-félagar krefjast þess að íranska ríkið ógildi dóminn gegn Arsalan og tryggi honum réttlát réttarhöld. 

Rannsóknir Amnesty International gefa til kynna að Arsalan hafi verið pyndaður í marga daga og skrifað undir játningu eftir að kona hans var sett í varðhald. 

Pyndingar brjóta gegn alþjóðalögum og eru ólöglegar undir öllum kringumstæðum. Játningar sem nást fram með pyndingum má ekki nota í réttarhöldum. 

Amnesty fordæmir dauðarefsinguna og er alfarið á móti henni í öllum tilfellum undir öllum kringumstæðum.