Jólakort Amnesty komið út!

Styrktu mannréttindabaráttuna með kaupum á kortum frá okkur!

Styrktu mannréttindabaráttuna með kaupum á kortum frá okkur!

Íslandsdeildin hefur ætíð leitast við að fá verk íslenskra listamanna til að prýða kortin. Jólakortið 2013 er eftir Kjuregej Alexöndru Argunovu  og heitir Haförninn og refurinn. Jólakortið er 14,5 cm á breidd og 15,7 cm á hæð.

Jólakortið er til sölu í Amnesty-búðinni hér á vefnum og kosta 10 kort í pakka með umslögum 1.800kr.

Smelltu hér til að kaupa kortið í Amnesty-búðinni: https://www.amnesty.is/amnesty-budin/eldri-jolakort/nr/2110

Þú getur pantað kortin með því að fylla út pöntun hér til hægri. Við sjáum svo um að senda kortin til þín. Vinsamlega athugaðu að sendingarkostnaður bætist við verð kortanna.

Hægt er að fá kortin með eða án jólakveðju (fyrir þá sem vilja sjálfir skrifa jólakveðjuna).

Einnig er hægt að koma á skrifstofu Íslandsdeildarinnar í Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík til að kaupa kortin. 

Kortin verða auk þess til sölu í verslunum Pennans og Eymundsson, Úlfarsfelli, Mál og menningu, Bóksölu stúdenta, Iðu og  öðrum bókaverslunum.