Kína: Ungur háskólanemi í haldi fyrir friðsamlegt aðgerðastarf erlendis

Zhang Yadi, einnig þekkt sem Tara, hvarf í Yunnan héraði í suðausturhluta Kína þann 31. júlí 2025. Hún var að snúa heim eftir háskólanám í Frakklandi þar sem hún tók þátt í mannréttindastarfi og var í sjálfboðastarfi fyrir  samtök  sem sameina kínverska háskólanema erlendis.

Talið er að hún hafi verið handtekin af öryggisveit stjórnvalda grunuð um að hvetja til aðskilnaðar og er í varðhaldi án samskipta við umheiminn.  Verði Zhang dæmd sek gæti hún átt yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsi en dómurinn gæti orðið enn þyngri ef hún er talin vera „uppreisnarleiðtogi“ eða brotið talið „alvarlegt“.

SMS-félagar krefjast þess að Zhang Yadi verði umsvifalaust leyst úr haldi án skilyrða.  

Zhang Yadi/Tara