1.499 niðurstöður

  • Mannréttindasprengja tifar að baki efnahagskreppunni

    Heimurinn situr á félagslegri, pólitískri og efnahagslegri tímasprengju sem sækir orku sína til vaxandi mannréttindakreppu. Þetta er meðal þess sem kemur fram i ársskýrslu Amnesty International 2009.

  • Amnesty-bíó

    Myndin verður sýnd mánudaginn 18.maí í húsnæði Íslandsdeildar, Þingholtsstræti 27, þriðju hæð. Sýningin hefst klukkan klukkan 20. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.

  • Átök í Pakistan: 65.000 manns á flótta

    Að minnsta kosti 65.000 manns hafa neyðst til að flýja átökin milli pakistanskra Talibana og stjórnarhersins í Neðri-Dir í norðvestanverðu Pakistan. Þetta fólk þarfnast aðstoðar.

  • Góðar fréttir: yfirvöld í Simbabve sleppa baráttumönnum úr haldi

    Síðustu þremur pólitísku föngunum, sem fulltrúar yfirvalda í Simbabve rændu í desember 2008, hefur nú verið sleppt úr haldi. Kisimusi Dhlamini, Andrison Manyere og Gandhi Mudzingwa voru meðal 30 baráttumanna sem urðu fyrir þvinguðum mannshvörfum og ólögmætri varðhaldsvist stjórnvalda.

  • Nýjar upplýsingar um aðild Bandaríkjanna að pyndingum sýna enn frekar þörfina á óháðri rannsókn

    Condoleezza Rice samþykkti notkun vatnspyndinga árið 2002 samkvæmt upplýsingum sem Leyniþjónustunefnd Bandaríkjaþings birti nýverið. Þar kemur fram að hún gaf munnlegt samþykki sitt fyrir notkun leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) á þessari og öðrum harkalegri yfirheyrsluaðferðum til að yfirheyra Abu Zubaydah, sem grunaður var um aðild að al-Qaida.

  • Konungur Barein skipar fyrir um lausn allra pólitískra fanga í landinu

    Yfirvöld í Barein létu nýverið lausa úr haldi alla pólitíska fanga í landinu, 178 talsins, eftir að konungur landsins náðaði þá. Meðal þeirra eru tveir baráttumenn úr röðum sjía-múslima, þeir Hassan Meshaima’a, leiðtogi stjórnarandstöðuhreyfingarinnar al-Haq og trúarleiðtoginn Mohammad Moqdad.

  • Róma-fólk í Evrópu sætir enn gríðarlegri mismunun

    Róma-fólk (stundum kallað sígaunar) sætir gríðarlegri mismunun víða í Evrópu varðandi húsnæði, vinnu, heilsugæslu og menntun. Það er oft neytt til að yfirgefa hús sín og má þola rasisma og lögregluofbeldi.

  • Lögregluofbeldi líðst óáreitt í Frakklandi

    Franska lögreglan er iðulega sökuð um alvarleg mannréttindabrot, oft gegn minnihlutahópum, en er sjaldan dregin til ábyrgðar fyrir þau brot, segir í nýrri skýrslu Amnesty International.