1.499 niðurstöður

  • Rússneska sambandsríkið: mannréttindalögfræðingur myrtur

    Amnesty International fordæmir morðið á lögfræðingnum Stanislav Markelov. Hann var skotinn til bana í miðborg Moskvu þegar hann bjó sig undir að áfrýja reynslulausn fyrrum rússnesks ofursta sem dæmdur var fyrir morðið á tsjetsjenskri stúlku.

  • Gasa: öryggisráð SÞ verður að beita sér enn frekar

    Ekki sér fyrir endann á hörmungunum á Gasa þrátt fyrir að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi samþykkt nær einróma ályktun 1860 þann 9.janúar síðastliðinn, um tafarlaust og varanlegt vopnahlé stríðandi fylkinga. Um 1.5 milljón óbreyttra borgara eru innilokaðir á Gasa-svæðinu þar sem þeir eru berskjaldaðir gegn mannfalli og eignaspjöllum.

  • Tryggja þarf að þeir sem framið hafa glæpi í átökunum á Gasa sæti ábyrgð

    Amnesty International hefur skrifað til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og hvatt til þess að þeir sem gerst hafa sekir um glæpi í átökunum á Gasa verði látnir sæta ábyrgð og að eftirlitsfólk með mannréttindum verði sent á svæðið. Bréfið var sent í kjölfar ályktunar ráðsins, sem það samþykkti nær einróma, þar sem hvatt er til tafarlauss og varanlegs vopnahlés á Gasa.

  • Sjö ár frá stofnun Gvantanamó fangabúðanna

    Hið alþjóðlega mannréttindakerfi hefur beðið mikinn hnekki allt frá því að Bandaríkjastjórn hóf hið svokallaða „stríð gegn hryðjuverkum“ fyrir sjö árum síðan. Fangabúðirnar við Gvantanamó flóa á Kúbu eru skýr vitnisburður í þá veru þar sem grundvallarmannréttindum hefur verið fórnað í þeim yfirlýsta tilgangi að stuðla að öryggi bandarískra borgara.

  • Amnesty International hvetur til tafarlauss vopnahlés á Gasa

    Amnesty International hvetur öryggisráð Sameinuðu þjóðanna til að krefjast þess að Ísrael, Hamas og vopnaðir palestínskir hópar komi tafarlaust á vopnahléi á Gasa og heimili brýna mannúðaraðstoð til íbúa svæðisins.

  • Metþátttaka í bréfamaraþoni árið 2008

    Hið alþjóðlega bréfamaraþon Amnesty International var haldið í fimmta sinn á Íslandi laugardaginn 13. desember og fór þátttakan fram úr björtustu vonum. Á þessum árlega viðburði hittast Amnesty-félagar og aðrir sem láta sér annt um mannréttindi og skrifa bréf og jólakort til þolenda mannréttindabrota sem og til þeirra sem bera ábyrgð á brotunum. Í ár tóku tíu sveitarfélög um land allt þátt í viðburðinum en leitað var eftir þátttöku almenningsbókasafna á mörgum stöðum þar sem þau eru víða miðpunktur mannlífs og mikilvægir samkomustaðir. Bréfamaraþon hafa ósjaldan verið haldin á bókasöfnum erlendis með góðum árangri og var það jafnframt raunin hérlendis. Að þessu sinni tók Íslandsdeild Amnesty International fyrir fimmtán mál frá Írak, Japan, Erítreu, Kóngó, Kambódíu, Mexíkó, Moldavíu, Íran, Nepal, Mósambík, Ísrael, Jórdaníu, Indlandi og Sri Lanka. Einnig setti deildin saman tillögur að kveðjum til þolenda mannréttindabrota og fjölskyldna þeirra, og útbúin voru fjórar gerðir af fyrirframskrifuðum póstkortum. Eitt til stuðnings mannréttindafrömuðinum Aung San Suu Kyi sem setið hefur í stofufangelsi í Mjanmar síðastliðin 18 ár, annað vegna þvingaðs mannshvarfs í Pakistan, hið þriðja til að þrýsta á stjórnvöld á Ítalíu vegna mismununar Roma-fólks þar í landi og að lokum til nýkjörins forseta Bandaríkjanna til að þrýsta á um lokun Gvantanamo fangabúðanna. Samtals voru 1921 bréf og kort send frá Íslandi þetta árið og er það fimmfalt fleiri en í fyrra. Bókasafn Grindavíkur sendi frá sér 60 bréf og kort, bókasafn Reykjanesbæjar 35, Selfoss 65, Kringlusafn 61, bókasafn Hafnarfjarðar 110, og bókasafn Akraness 56. Frá Akureyri voru send 444 bréf og kort, Ísafirði 86, Egilsstöðum 158, Höfn í Hornafirði 276, og 628 frá Reykjavík. Íslandsdeild Amnesty International sendir öllu því góða fólki sem stóð að framkvæmd bréfamaraþonsins og þeim mikla fjölda sem tók þátt, innilegustu þakkarkveðjur fyrir að láta sig mannréttindi svo miklu varða.  

  • Áttu orð aflögu?

    Hið árlega bréfamaraþon Amnesty International verður haldið laugardaginn 13. desember en það hefur aldrei verið með jafn stóru sniði og í ár; það verður haldið á Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði, Höfn í Hornafirði, Selfossi, Hafnarfirði, Akranesi, í Reykjanesbæ og í Reykjavík.