Fræðslumyndbönd fyrir flóttafólk og aðra innflytjendur
Íslandsdeild Amnesty International og Mannréttindaskrifstofa Íslands hafa gefið út þrjú fræðslumyndbönd um mannréttindi á sex tungumálum (íslensku, ensku, pólsku, spænsku, persnesku og arabísku). Myndböndin þrjú fjalla um jafnrétti, réttindi á vinnumarkaði og réttindi barna. Markmiðið með myndböndunum er að veita flóttafólki og öðrum innflytjendum gagnlegar grunnupplýsingar um réttindi í þessum þremur málaflokkum í tengslum við íslenskt samfélag.
