Bandaríkin: Þrýstið á að Ciham Ali verði leyst úr haldi
Þegar Ciham Ali var 15 ára reyndi hún að yfirgefa Erítreu en stjórnvöld handtóku hana. Ekki hefur sést til hennar síðan og nú eru liðin átta ár. Hjálpaðu okkur að finna Ciham og leysa úr haldi.
Þegar Ciham Ali var 15 ára reyndi hún að yfirgefa Erítreu en stjórnvöld handtóku hana. Ekki hefur sést til hennar síðan og nú eru liðin átta ár. Hjálpaðu okkur að finna Ciham og leysa úr haldi.
Í maí hefst ungliðastarf Amnesty International af fullum krafti og ungu fólki á aldrinum 14-24 ára er velkomið að taka þátt.
Að minnsta kosti 41 kona frá Srí Lanka hefur verið í haldi í Sádi–Arabíu í allt að 18 mánuði. Þrjár konur eru með ung börn með sér og ein kona þarf nauðsynlega á læknisþjónustu að halda. Engin þeirra hefur verið upplýst um ákærur gegn þeim né hafa þær fengið lagalega aðstoð.
Amnesty International er alþjóðleg hreyfing tíu milljón einstaklinga um heim allan sem vilja berjast fyrir réttlátum heimi þar sem mannréttindi okkar allra eru virt. Þann 28. maí eru 60 ár frá því að Amnesty International hóf baráttu sína fyrir mannréttindum.
Quinn Moon og Tang Kai-yin, tveir af þeim tólf einstaklingum frá Hong Kong sem handteknir voru í ágúst 2020 af kínversku strandgæslunni, hafa verið í haldi í næstum átta mánuði án þess að hafa fengið að hitta fjölskyldu sína eða lögfræðinga. Fjölskyldur þeirra hafa ítrekað óskað eftir að eiga við þau samskipti án árangurs. Ástand þeirra og heilsufar er mikið áhyggjuefni því bæði eru þau með undirliggjandi sjúkdóma.
Samkvæmt árlegri skýrslu Amnesty International um dauðarefsinguna kom kórónuveirufaraldurinn ekki í veg fyrir aftökur í 18 löndum árið 2020. Þrátt fyrir fækkun á heimsvísu voru nokkur lönd sem beittu dauðarefsingunni og fjölguðu jafnvel aftökum á sama tíma og heimurinn einbeitti sér að því að vernda fólk gegn skæðri veiru.
Þingið í Dóminíska lýðveldinu vinnur nú að umbótum á hegningarlögum í landinu. Þar á meðal er verið að ræða hvort eigi að afglæpavæða þungunarrof við ákveðin skilyrði. Hundruð aðgerðasinna tjalda nú fyrir utan þinghúsið og krefjast þess að þingmenn styðji þessar breytingar.
Árið 2020, í miðjum heimsfaraldri, kom skýrt í ljós hvernig arfleifð fjandsamlegrar stefnu stjórnvalda sem byggir á sundrungu, ýtir undir ójöfnuð, mismunun og kúgun. Þetta kemur fram í ársskýrslu Amnesty International fyrir árið 2020.
Íslandsdeild Amnesty International fagnar því að síðastliðinn þriðjudag, þann 23. mars, hafi verið samþykkt ályktun í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna um stöðu mannréttinda í Íran, sem ríkjahópur undir forystu Íslands lagði fram. Umrædd ályktun tryggir áframhaldandi umboð sérstaks skýrslugjafa til að fylgjast með og upplýsa mannréttindaráðið reglulega um stöðu mannréttinda í Íran.
Næstum ein milljón Róhingja býr í niðurníddum flóttamannabúðum í Cox Bazar í Bangladess eftir að hafa flúið heimili sín í Mjanmar vegna glæpa hersins gegn mannkyninu. Þessir glæpir eru nú til skoðunar hjá Alþjóðadómstólnum í Haag.
Amnesty International hefur ráðið nýjan aðalframkvæmdastjóra, Agnèsi Callamard sérfræðing í mannréttindum, sem hefur formlega störf í dag, þann 29. mars 2021. Agnès Callamard gengur til liðs við stærstu óháðu mannréttindasamtök heims í kjölfar starfa sinna sem sérstakur skýrslugjafi Sameinuðu þjóðanna um aftökur án dóms og laga. Í því hlutverki leiddi hún mikilvægar rannsóknir, þeirra á meðal rannsókn á morðinu á sádi-arabíska blaðamanninum Jamal Khashoggi.
Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International var haldinn 17. mars síðastliðinn á skrifstofu samtakanna. Fundurinn fór einnig fram á vefnum en er þetta í annað sinn sem boðið var upp á fjarfund. Góð mæting var á fundinn. Eins og venja er var ársskýrsla deildarinnar flutt og ársreikningar kynntir sem voru síðan bæði samþykkt á fundinum.