14 góðar fréttir frá árinu 2015
Stuðningur við baráttu gegn alvarlegum mannréttindabrotum skilar árangri. Hér má lesa um árangur 14 mannréttindamála sem Amnesty International hefur komið að á einn eða annan hátt.
Stuðningur við baráttu gegn alvarlegum mannréttindabrotum skilar árangri. Hér má lesa um árangur 14 mannréttindamála sem Amnesty International hefur komið að á einn eða annan hátt.
Það er mögulegt að stöðva pyndingar. Í þeim löndum sem komið hafa upp vörnum gegn pyndingum hefur fjöldi kvartana og ákæra vegna pyndinga og annarar illrar meðferðar fækkað töluvert.
Föstudagurinn 26. júní er alþjóðlegur dagur Sameinuðu þjóðanna til stuðnings þolendum pyndinga.
Þann 13. maí árið 2014 hleypti Amnesty International úr vör herferðinni, Stöðvum pyndingar til að bregðast við aukningu á beitingu pyndinga á heimsvísu – samtökin skráðu pyndingar í 141 ríki síðustu fimm árin.
Ákvörðun hæstaréttar í Sádi-Arabíu um að staðfesta dóminn er bloggarinn Raif Badawi hlaut upp á 10 ár í fangelsi og 1000 svipuhögg er svartur dagur fyrir tjáningarfrelsið í landinu, að sögn Amnesty International.
177.000 – konur og stúlkur hafa ferðast frá Írlandi til Englands og Wales í fóstureyðingu frá árinu 1971. Árið 2013, fóru a.m.k. 3679 konur og stúlkur frá Írlandi til annarra landa í fóstureyðingu.
Þungaðar konur stofna lífi sínu og heilsu í hættu haldi þær til á Írlandi, samkvæmt nýrri skýrslu Amnesty International um fóstureyðingarlög í landinu.
Á síðasta ári tók fjöldi Íslendinga þátt í alþjóðlegri aðgerð þar sem þrýst var á fylkisstjóra á óseyrum Nígerfljóts að náða Moses, ungan pilt frá Nígeríu, sem var pyndaður og dæmdur var til dauða með hengingu eftir átta ár í fangelsi.
Í nýrri og ítarlegri samantekt Amnesty International koma fram margvísleg sönnunargögn um áframhaldandi stríðsglæpi, þeirra á meðal pyndingar og skyndiaftökur á föngum, sem eiga sér stað á degi hverjum í Austur-Úkraínu.
Vegna fjölda fyrirspurna viljum við benda ykkur á að hægt er að heita á Íslandsdeild Amnesty International í Reykjavíkurmaraþoninu í sumar. Smelltu hérna til að skrá þig og/eða safna áheitum í alþjóðlegri baráttu samtakanna gegn pyndingum. Fjórir einstaklingar hafa nú þegar heitið á samtökin og hvetjum við alla til styrkja þau til góðs eða skrá sig í maraþonið og hlaupa í þágu samtakanna. Hlauptu undir bagga með mannréttindum í sumar!
Þann 27. mars afhenti starfsfólk Amnesty International á Filippseyjum undirskriftir frá bréfamaraþoninu 2014 til lögreglunnar þar í landi. Strax eftir afhendingu bárust Jerryme og fjölskyldu hans þær fregnir frá lögreglunni að rannsókn yrði sett af stað líkt og Amnesty International kallaði eftir.
Almenn andstaða er í heiminum gegn eftirliti Bandaríkjanna á net- og símanotkun samkvæmt stórri alþjóðlegri könnun sem Amnesty International lét gera.