Mexíkó: lausn samviskufanga sem sætti pyndingum fagnaðarefni en kemur nokkrum árum of seint
Það er fagnaðarefni að samviskufanginn, Ángel Amílcar Colón Quevedo, hafi verið leystur úr haldi eftir fimm ár í varðhaldi án réttarhalda. Ángel sætti pyndingum í varðhaldi. Ángel Colón var handtekinn af lögreglu í Tijuana í Norður-Mexíkó þar sem hann ferðaðist frá Hondúras til Bandaríkjanna í mars 2009.
