Tyrkland: Lokun landamæra við Sýrland stofnar lífi fólks í hættu
Tyrknesk yfirvöld verða að tryggja að landamæri landsins séu opin fyrir þá sem flýja átök og mannréttindabrot í Sýrlandi og Írak. Tyrkland hóf að loka landmærum sínum við Sýrland eftir að 130.000 kúrdískir flóttamenn streymdu inn í landið fyrir stuttu á flótta frá ásókn vopnaðs hóps sem kallar sig Íslamska ríkið.
