Óháð rannsókn verður að fara fram á þyrluárás Bandaríkjahers í Írak 2007
Amnesty International hvetur til þess að gerð verði nákvæm og hlutlaus rannsókn á þyrluárás Bandaríkjahers í Írak þann 12. júlí 2007, en myndbandi af árásinni hefur verið lekið. Allt að tólf manns létust í árásinni, þeirra á meðal blaðamaður og bílstjóri hans.
