dauðarefsingin árið 2024
Tölur og staðreyndir
Aukning aftaka
1.518 aftökur í 15 löndum árið 2024 að undanskildu Kína, Norður-Kórea og Víetnam.
Þetta er 32% aukning frá árinu 2023 (1.153).
- Kína framkvæmir flestar aftökur á heimsvísu. Talið er að þær skipti þúsundum en tölurnar eru ríkisleyndarmál.
- Víetnam og Norður-Kórea. Engar tölur þaðan en talið er að þar séu fjölmargar aftökur.
Þetta er mesti fjöldi aftaka í heiminum síðan árið 2015.
Flestar aftökur eftir löndum

Skýrsla Amnesty International
Dauðarefsingin árið 2024
á ensku
Brot á alþjóðalögum
637 ólögmætar aftökur fóru fram á árinu fyrir vímuefnatengd brot sem er 42% allra aftaka á heimsvísu:
- í Kína (Ekki vitað með fjölda)
- Í Íran (505 aftökur sem eru 52% allra aftaka)
- Í Sádi-Arabíu (122 aftökur sem eru 35% allra aftaka)
- Í Singapúr (8 aftökur sem eru 89% allra aftaka).
- Í Víetnam (Ekki vitað með fjölda en talið er að aftökur fyrir slík brot hafi átt sér stað)
Aftökur einstaklinga undir 18 ára aldri þegar brotið var framið:
- Fjórar aftökur í Íran
- Fjórar aftökur í Sómalíu
Opinberar aftökur:
- Fjórar í Afganistan
- Fjórar í Íran
Aðferðir við aftökur

Dauðadómar á heimsvísu
Mildun dauðadóma og náðanir
Níu fangar sem voru dæmdir til dauða voru hreinsaðir af sök í þremur löndum:
- Japan (1)
- Malasíu (5)
- Bandaríkjunum (3)
18 lönd náðuðu einstaklinga dæmda til dauða eða milduðu dauðadóma samkvæmt gögnum Amnesty International.
Dauðadómar kveðnir upp

Afnám dauðarefsingarinnar
113 lönd hafa afnumið hana að fullu í lok árs 2024.
145 lönd hafa afnumið hana í lögum eða framkvæmd í lok árs 2024.
Í fyrsta sinn kusu tveir þriðju ríkja Sameinuðu þjóðanna með ályktun um stöðvun dauðarefsingarinnar á allsherjarþinginu.

Beiting dauðaefsingarinnar
eftir heimshlutum
Mið-Austurlönd og Norður-Afríka
34% aukning aftaka milli ára.
- 1.073 aftökur árið 2023 og 1.442 árið 2024.
- 369 fleiri einstaklingar teknir af lífi árið 2024 en árið 2023.
Átta lönd framkvæmdu aftökur árið 2024: Egyptaland, Íran, Írak, Kúveit, Óman, Sádi-Arabía, Sýrland og Jemen. Óman hóf aftökur á ný. Síðast var aftaka árið 2021.
Íran, Írak og Sádi-Arabía framkvæmdu flestar aftökur á svæðinu árið 2024.
- 96% allra aftaka á svæðinu í þessum þremur löndum.
- Íran framkvæmdi 67% allra aftaka á svæðinu.
Tvöföldun aftaka í Jemen og fjórföldun í Írak í samanburði við árið 2023.
Jákvætt:
773 nýir dauðadómar kveðnir upp á árinu 2024 sem er 19% fækkun.
Asía og Kyrrahafið
Enn og aftur var mesti fjöldi aftaka á þessu svæði í heiminum.
843 dauðadómar voru kveðnir upp á árinu 2024.
Aftökur í fimm löndum (einu færri en árið 2023):
- Afganistan
- Kína
- Norður-Kóreu
- Singapúr
- Víetnam
Jákvætt:
Engar aftökur áttu sér stað í Bangladess sem er í fyrsta sinn frá árinu 2018.
Rúmlega 1000 dauðadómar voru mildaðir í Malasíu.
Afríka sunnan Sahara
Sómalía er eina landið þar sem aftökur fóru fram en þar voru 34 aftökur skráðar.
Dauðadómar voru kveðnir upp í 14 löndum.
Búrkína Fasó, Lýðstjórnarlýðveldið Kongó og Nígería tóku skref sem gætu leitt til útvíkkunar á beitingu dauðarefsingarinnar.
Jákvætt:
Simbabve og Sambía tóku jákvæð skref í átt að afnámi dauðarefsingarinnar og hafa skuldbundið sig til að afnema hana í samræmi við alþjóðalög.
Norður- og Suður-Ameríka
16. árið í röð voru Bandaríkin eina landið á þessu svæði sem tók fólk af lífi.
Mesti fjöldi aftaka frá árinu 2015 í Bandaríkjunum: 25 árið 2024 en 28 árið 2015.
Fjögur ríki Bandaríkjanna hófu aftökur á ný (Georgía, Indiana, Suður-Karólína og Utah). Alabama þrefaldaði fjölda aftaka.
Jákvætt:
Trínidad og Tóbagó og Bandaríkin voru einu ríkin sem kváðu upp dauðadóma.
Evrópa og Mið-Asía
Belarús var eina landið í Evrópu til að beita dauðarefsingunni.
Einn dauðadómur var kveðinn upp árið 2024 en rúmum mánuði síðar var einstaklingurinn náðaður.
Jákvætt:
Í Rússlandi og Tadsíkistan var áframhaldandi aftökuhlé.





