Einangrunarvist fanga


Staðan á Íslandi

Samkvæmt alþjóða­lögum skal beiting einangrunarvistar heyra til algjörra undantekninga, hún skal vara í sem skemmstan tíma og ávallt vera háð ströngum skilyrðum.

Ísland beitir einangr­un­ar­vist í gæslu­varð­haldi óhóf­lega og brýtur þannig meðal annars gegn samningi Sameinuðu þjóð­anna gegn pynd­ingum og annarri grimmi­legri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refs­ingu með alvar­legum afleið­ingum fyrir sakborn­inga og rétt þeirra til sann­gjarnra rétt­arhalda.

Þetta eru niður­stöður skýrslu Amnesty International sem gefin var út í janúar 2023: „Waking up to nothing: Harmful and unjustified use of pre-trial solitary confinement in Iceland“.

Skýrsla Amnesty International

“Waking up to nothing” Harmful and unjustified use of pre-trial solitary confinement in Iceland

Beiting einangrunarvistar í gæsluvarðhaldi á Íslandi

Óhófleg beiting

Enda þótt einangrunarvist sé ekki með öllu bönnuð samkvæmt alþjóðalögum þá kveða þau á um að beiting hennar skuli heyra til algjörra undantekninga, hún skuli vara í sem skemmstan tíma og ávallt vera háð ströngum skilyrðum.

Engin þessara atriða eru virt á Íslandi þar sem kröfur lögreglu um einangrunarvist í gæsluvarðhaldi eru nánast ávallt samþykktar af dómurum.

  • Einangrunarvist í gæsluvarðhaldi er beitt óhóflega á Íslandi.
  • Einangrunarvist í gæsluvarðhaldi á Íslandi hefur verið beitt gegn börnum og einstaklingum með fötlun og geðraskanir.
  • Dæmi eru um að grunaðir einstaklingar hafi sætt einangrun í gæsluvarðhaldi í tæpa tvo mánuði. Það er skýrt mannréttindabrot.

10 börn

sættu einangrun í gæslu­varð­haldi á Íslandi á árunum 2012-2021.

99% tilvika

samþykktu dómarar kröfur ákæru­valdsins um einangr­un­ar­vist í gæslu­varð­haldi á Íslandi á árunum 2016-2018.

99 einstaklingar

sættu langvar­andi einangr­un­ar­vist þ.e. lengur en í 15 daga á árunum á Íslandi á árunum 2012-2021.

Skýrsla Amnesty International

Útdráttur á íslensku

“Waking up to nothing” Harmful and unjustified use of pre-trial solitary confinement in Iceland

Réttlæting

Meginréttlæting íslenskra yfirvalda á beitingu einangrunarvistar í gæsluvarðhaldi er verndun rannsóknarhagsmuna.

Amnesty International lítur svo á að aldrei skuli beita einangrunarvist til þess eins að vernda rannsóknarhagsmuni lögreglu enda stríðir það gegn alþjóðlegri mannréttindalöggjöf um nauðsyn og meðalhóf. Önnur og vægari úrræði eru tiltæk til að gæta rannsóknarhagsmuna, eins og að aðskilja gæsluvarðhaldsfanga frá tilteknum einstaklingum og takmarka símanotkun.

Erfitt er að ákvarða með fullri vissu hvort lögregla og saksóknarar beiti einangrunarvist vísvitandi í þeim tilgangi að beita þrýstingi. Það er hins vegar enginn vafi á því að einangrunarvist skapar ákveðinn þrýsting. Ef einangrunarvist er beitt í þeim eina tilgangi að ná fram upplýsingum eða játningu telst það til pyndinga og annarrar grimmilegrar meðferðar.

© Anna Kristín Shumeeva

„Ég horfði á bíómyndina og taldi klukkutímana, hversu löng myndin var. En það var eitthvað sem ég hef aldrei upplifað áður. Þetta var, þú veist, að vita ekki hvaða tími dags var, nótt eða dagur, sjö til níu daga…Ég gat ekki sofið þó að ég vildi sofa.“

fyrrum fangi í einangrunarvist

Skaðsemi

Fjöldi rann­sókna bendir til þess að einangr­un­ar­vist hafi alvarleg heilsufarsáhrif, bæði líkamleg og andleg. Einkenni fela meðal annars í sér svefn­leysi, rugling, ofsjónir og geðrof. Neikvæð heilsufarsáhrif geta komið í ljós eftir aðeins örfáa daga í einangrun.

Sjálfs­vígs­hætta og sjálfsskaði eykst á fyrstu tveimur vikum einangr­un­ar­vistar. Hætta á heilsutjóni eykst með degi hverjum í einangrun.

Langvarandi einangrunarvist sem er lengur en í 15 daga er skýrt brot á alþjóðlegu banni gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu.

© Anna Kristín Shumeeva

Skortur á varnöglum

Skortur er á varnöglum til verndar börnum og einstaklingum í viðkvæmri stöðu sem eru í mikilli hættu á að bera skaða af einangrunarvist, til dæmis einstaklingar með líkamlega fötlun, geðraskanir eða þroskahömlun. Þetta á einnig við um einstaklinga með sumar taugaþroskaraskanir.

Viðtöl rannsakenda Amnesty International við lögfræðinga og gæsluvarðhaldsfanga sýndu fram á fjölda tilfella þar sem einangrunarvist var beitt gegn einstaklingum þrátt fyrir mikla hættu á skaða. Það gengur í berhögg við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands.

Í samræmi við alþjóðlegt bann gegn pyndingum og annarri illri meðferð ætti aldrei að hafa fólk í viðkvæmri stöðu í einangrunarvist, svo sem fólk með fötlun, geðraskanir eða taugaþroskaraskanir, þar sem einkenni gætu versnað við einangrun sem er því líkleg til að valda skaða.

Tilmæli til íslenskra stjórnvalda

Á meðal tilmæla:

  • Endurskoða hegningarlög með það í huga að koma í veg fyrir að unnt sé að beita einangrunarvist eingöngu á þeim grundvelli að vernda þurfi rannsóknarhagsmuni.
  • Greina og innleiða aðrar takmarkanir sem eru minna íþyngjandi en einangrunarvist.
  • Setja í forgang aðgerðir sem tryggja bann við einangrunarvist:
    • Gegn börnum.
    • Gegn einstaklingum með líkamlega eða andlega fötlun eða taugaþroskaraskanir hverra ástand gæti versnað við einangrun.
    • Sem varir lengur en 15 daga.
  • Innleiða stranga varnagla til að tryggja að beiting einangrunarvistar sé í samræmi við mannréttindastaðla, þar á meðal bann gegn pyndingum, réttinum til sanngjarnrar málsmeðferðar og bann við mismunun.

Tilmæli til íslenskra stjórnvalda

Á meðal tilmæla:

  • Endurskoða hegningarlög með það í huga að koma í veg fyrir að unnt sé að beita einangrunarvist eingöngu á þeim grundvelli að vernda þurfi rannsóknarhagsmuni.
  • Greina og innleiða aðrar takmarkanir sem eru minna íþyngjandi en einangrunarvist.
  • Setja í forgang aðgerðir sem tryggja bann við einangrunarvist:
    • Gegn börnum.
    • Gegn einstaklingum með líkamlega eða andlega fötlun eða taugaþroskaraskanir hverra ástand gæti versnað við einangrun.
    • Sem varir lengur en 15 daga.
  • Innleiða stranga varnagla til að tryggja að beiting einangrunarvistar sé í samræmi við mannréttindastaðla, þar á meðal bann gegn pyndingum, réttinum til sanngjarnrar málsmeðferðar og bann við mismunun.

Þrýstingur á íslensk stjórnvöld

Árið 2022

Nefnd Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum

Í kjölfar umsagnar Íslandsdeildar Amnesty International til nefndar Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum (e. CAT) í apríl gaf nefndin út álit og tilmæli til íslenskra stjórnvalda í maí sama ár er varðar beitingu einangrunarvistar í gæsluvarðhaldi.

Nefndin gerði meðal annars alvar­legar athuga­semdir við íslenskan lagaramma. Lýst var yfir áhyggjum af tilfellum þar sem einangrun einstak­linga í gæsluvarðhaldi varði lengst í 33 daga árið 2020 og 37 daga árið 2021 og að minnsta kosti 54% gæsluvarðhaldsfanga hafi sætt einangrun á árunum 2012-2021.

Að auki var bent á að dómarar samþykktu í 98,77% tilvika kröfu ákæruvaldsins um einangrun í gæsluvarðhaldi á árunum 2016-2018. Nefndin taldi það einnig áhyggju­efni að í einstaka tilfellum hafi börn sætt einangrun í gæsluvarðhaldi og mögu­lega einstak­lingar með geðfötlun.

Árið 2023

Útgáfa skýrslu

Íslandsdeildin þrýsti á yfirvöld um að uppfylla tilmæli Amnesty International sem komu fram í skýrslu samtakanna sem gefin var út í janúar. Lagaráðgjafi alþjóðaskrifstofu Amnesty International, Simon Crowther, kom til landsins við útgáfu hennar og veitti viðtöl í fjölmiðlum ásamt því að sitja fundi með yfirvöldum. Mikil fjölmiðlaumfjöllun átti sér stað á Íslandi um niðurstöður skýrslunnar.

Málþing

Í apríl stóð Íslandsdeildin fyrir lokuðu málþingi í Þjóðminjasafninu þar sem mættu alls 50 hagaðilar. Fimm einstaklingar frá mismunandi stofnunum og embættum hérlendis héldu erindi ásamt þremur erlendum sérfræðingum sem komu til landsins í boði deildarinnar. Á málþinginu lýstu íslensk yfirvöld yfir skýrum vilja til að koma á nauðsynlegum breytingum á lögum og framkvæmd sem tryggja betur réttindi frelsissvipts fólks í einangrun í gæsluvarðhaldi. Íslensk stjórnvöld lýstu því sama yfir í svari til nefndar Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum í lok maí 2023.

Árið 2024

Stefnumótun stjórnvalda

Dómsmálaráðuneytið kynnti í júní áform um heildstæða stefnumótun í fullnustumálum sem leiða á til útgáfu grænbókar, stöðumats- og valkostagreiningar er varðar fullnustu refsinga. Í júlí sendi Íslandsdeildin inn umsögn varðandi þessi áform með tilmælum til stjórnvalda um einangrunarvist í gæsluvarðhaldi. Stuttu síðar fundaði Íslandsdeildin með fulltrúum dómsmálaráðuneytisins og öðrum hagaðilum um stöðuna í málaflokknum á Íslandi og helstu áskoranir er varða fullnustu refsinga.

Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna

Íslandsdeild Amnesty Internati­onal sendi inn umsögn til Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna fyrir úttekt nefndarinnar í október um stöðu mannréttinda á Íslandi. Nefndin tók undir þrjú af fjórum áhyggjuefnum sem Amnesty International vakti sérstak­lega athygli á, þar á meðal gagn­rýndi nefndin hátt hlut­fall gæslu­varð­halds­fanga í einangrunarvist og þá sérstaklega erlendra ríkisborgara. Tekið var undir tilmæli Amnesty International og hvatt var til þess að einangr­un­ar­vist yrði aðeins notuð í undan­tekn­ing­ar­til­vikum sem síðasta úrræði, með skýrum rökstuðn­ingi og að hvert tilfelli væri metið á grundvelli hvers einstaklings fyrir sig. 

Málþing um einangrunarvist í gæsluvarðhaldi á Íslandi

FYLGDU OKKUR Á SAMFÉLAGSMIÐLUM