Íslandsdeild Amnesty International skorar á ungmenni á aldrinum 16-25 ára að taka þátt í mannréttindaáskorun! Hefur þú áhuga á mannréttindum? Búðu til stutt vídjó, í verðlaun er úlpan Dyngja frá 66° NORÐUR.
Hvað þarf að gera?
- Búðu til vídjó með símanum þínum undir einni mínútu – hámark tveir mega standa að hverju myndbandi!
- Deildu vídjóinu á Instagram, bæði í story og á vegg og skoraðu á þrjá vini til þess að taka þátt!
- Taggaðu #þittnafn og @amnestyiceland, bæði í story og á vegg.
- Skrifaðu undir málin á www.amnesty.is
- Fylgdu @amnestyiceland á instagram
Hvað þarf að koma fram í Vídjóinu?
- Um hvað snýst herferðin Þitt nafn bjargar lífi?
- Hvernig getur þú lagt þitt að mörkum núna?
- Hvernig tekur þú þátt í keppninni um Mannréttindaskóla ársins 2020?
Vídjóið er metið út frá frumleika, skýrleika og upplýsinga- og skemmtanagildi.
Í dómnefnd sitja: Reynir Lyngdal (leikstjóri), Sonja Huld Guðjónsdóttir (Amnesty) og Thelma Marín Jónsdóttir (Amnesty).
Skilafrestur er til 18.desember
Vinningsvídjóið verður tilkynnt 22. desember og Í verðlaun er úlpan Dyngja frá 66° Norður!
