Það verður mikið um að vera hjá Íslandsdeild Amnesty International um helgina en þá fer Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fram í 34. sinn og Menningarnótt í Reykjavík verður haldin í 22. sinn.
Það verður mikið um að vera hjá
Íslandsdeild Amnesty International um helgina en þá fer Reykjavíkurmaraþon
Íslandsbanka fram í 34. sinn og Menningarnótt í Reykjavík verður haldin í 22. sinn.
Anna Lilja, Óskar, Nadia og Majid ætla öll að hlaupa til góðs fyrir Amnesty International á laugardaginn.Hlaupum til góðs í
ReykjavíkurmaraþoninuÁ fjórða tug hlaupara ætlar að
hlaupa til góðs fyrir Amnesty International í ár, þar á meðal er hið kraftmikla
fólk Anna Lilja, Nadia, Óskar og Majid en viðtöl við þau hafa birst á
heimasíðunni okkar undarfarnar vikur. Starfsfólk og ungliðar samtakanna munu
standa vaktina á hliðarlínunni í Reykjavíkurmaraþoninu og hvetja hlauparana
okkar áfram.Við skorum á þig að leggja
mannréttindabaráttunni enn frekar lið og heita á Amnesty-hlauparana okkar á
www.hlaupastyrkur.is.Opið hús á MenningarnóttÞá fer Vöfflukaffi í
Þingholtunum fram á skrifstofu samtakanna að Þingholtsstræti 27 líkt og
undanfarin ár en húsið verður opið á milli 14 og 16. Vöfflukaffið verður með tyrknesku ívafi í
ár til stuðnings öllu því baráttufólki fyrir mannréttindum sem situr í fangelsi
í Tyrklandi um þessar mundir. Boðið verður upp á tyrkneska tónlist, tyrkneskt
kaffi og meðlæti auk hinna hefðbundnu íslensku vaffla. Gestum býðst að taka
þátt í undirskriftasöfnun og ljósmyndaaðgerð samtakanna til styrktar
mannréttindabaráttunni í Tyrklandi. Gaman væri að sjá sem flesta í kaffi hjá okkur á laugardaginn!
Tyrkneskt baklava og íslenskar vöfflur verða á boðstólnum á opnu húsi hjá Amnesty International á Menningarnótt.
