Mannréttindahetjan Moses Akatugba verður gestur Íslandsdeildar Amnesty International dagana 14. til 17. nóvember næstkomandi, ásamt Damian Ugwu yfirmanni rannsóknastarfs hjá Amnesty International í Nígeríu.

Þeir munu halda erindi í Norræna húsinu miðvikudaginn 16. nóvember frá kl. 12:00 til 13:00. Moses mun fjalla um reynslu sína sem þolandi grófra pyndinga af hálfu lögreglu og hers í Nígeríu, áratuginn sem hann sat á bak við lás og slá, tíma sinn á dauðadeild, langþráða náðun á síðasta ári í kjölfar Bréfamaraþons Amnesty International 2014 og mikilvægi þess að berjast fyrir réttindum annarra þolanda mannréttindabrota. Frá Íslandi bárust 16.000 bréf, sms-aðgerðir og póstkort í Bréfamaraþoninu til stuðnings máli Moses. Damian Ugwu mun greina frá rannsóknum sínum á kerfisbundnum pyndingum af hálfu lögreglu og hers í Nígeríu.
Fyrirlestrarnir eru öllum opnir og haldnir í samstarfi við MARK – Miðstöð margbreytileika- og kynjarannrókna og Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands.
Vinsamlegast skráið ykkur á viðburðinn hérna til að við getum gert okkur grein fyrir fjöldanum.