Námskeið fyrir Amnesty-félaga 19. apríl 2008

Laugardaginn 19. apríl heldur Amnesty International námskeið fyrir félaga. Þar verður m.a. fjallað um starfsaðferðir, markmið og uppbyggingu Amnesty International svo og mannréttindaáherslur samtakanna um þessar mundir.

Námskeiðið verður haldið í Hinu húsinu (Gamla pósthúsið á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis). Námskeiðið hefst kl. 13.00 og lýkur um kl. 16.00.

Amnesty International byggir starf sitt á þátttöku félaga. Námskeiðið er kjörið tækifæri til að kynnast betur starfseminni og viðfangsefnum samtakanna og hitta aðra Amnesty-félaga.

Námskeiðið er ókeypis og opið öllum félögum en nýir félagar eru sérstaklega hvattir til þátttöku.

Til að geta undirbúið námskeiðið sem best biðjum við þig að skrá þátttöku þína sem fyrst með því að senda okkur tölvupóst á netfangið skraning@amnesty.is eða hringja á skrifstofuna í síma 511 7900.

Bestu kveðjur,
Skrifstofa