Níger: Blaðamaður í haldi fyrir færslu á samfélagsmiðlum

Blaðamanninum Mamane Kaka Touda er haldið í fangelsi í Niamey í Níger fyrir að birta færslu á samfélagsmiðlum varðandi grun um COVID-19 smit á gjörgæsludeild spítalans í borginni.

Uppfært: Laus úr haldi. Lestu nánar

Hann var handtekinn heima hjá sér þann 5. mars síðastliðinn og ákærður fyrir að dreifa upplýsingum til að valda usla í samfélaginu.

Skráðu þig í sms-aðgerðanetið hér! Sendu svo AKALL í númerið 1900 til að skrifa undir málið.

Mamane Kaka Touda er mannréttindasinni og meðlimur í frjálsu félagasamtökunum „Alternative Espacas Citoyens“.

Í yfirlýsingu sem spítalinn sendi frá sér sama dag kom fram að engin smit hefðu greinst. Talsmaður frá heilbrigðisráðuneytinu staðfesti í framhaldi að málið sem Mamane Kaka Touda vísaði í varðaði ítalskan ríkisborgara sem hefði verið lagður þar inn en sýni úr viðkomandi reyndist neikvætt.

Enn hefur ekkert smit greinst í Níger.

SMS-félagar krefjast þess að Mamane Kaka Touda verði leystur úr haldi umsvifalaust og ákæra á hendur honum verði felld niður. Einnig er farið fram á að hann hafi fullan aðgang að lögfræðingi sínum og fjölskyldu og stjórnvöld virði tjáningarfrelsi.