Næsta laugardag, 27. nóvember, klukkan 15.00 mun Amnesty International á Íslandi standa fyrir óvenjulegri tískusýningu, svonefndri
“Mig langaði til þess að kalla á hjálp, en ég var svo hrædd að ég kom ekki upp orði.”
Úr íslenskum dómi um heimilisofbeldi
Næsta laugardag, 27. nóvember, klukkan 15.00 mun Amnesty International á Íslandi standa fyrir óvenjulegri tískusýningu, svonefndri “áverkasýningu” í Iðu, Lækjargötu. Þekktar íslenskar konur taka þátt í sýningunni, þær:
Unnur Ösp Stefánsdóttir,
Margrét Eir Hjartardóttir,
Guðrún Gísladóttir,
Elma Lísa Gunnarsdóttir,
Laufey Brá Jónsdóttir og
Katrín Jakobsdóttir.
Þær koma fram í fötum frá Spútnik og Rögnu Fróða. Meðan sýningarstúlkurnar ganga fram mun kynnir lesa upp úr íslenskum dómsmálum um heimilisofbeldi og sýningarstúlkurnar verða farðaðar eftir áverkalýsingum úr þeim dómsmálum. Þær munu tala í stað kvennanna sem urðu fyrir þessu ofbeldi. Undirspilið verða hljóð sem þolendur heimilisofbeldis þekkja of vel, sírenur, högg og brothljóð.
Sýningin er haldin sem hluti af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi er stendur yfir frá 25. nóvember til 10. desember.
Á sýningunni verða áverkar heimilisofbeldis, sem sjaldnast eru sýnilegir, dregnir fram í dagsljósið og brotinn sá þagnarmúr, sem umkringir þetta samfélagsvandamál.
Fjölmiðlafólk er boðið velkomið á sýninguna í Iðu í Lækjargötu, laugardaginn 27. nóvember, klukkan 15.00.
Verkefnið er skipulagt af Amnesty International á Íslandi (www.amnesty.is).
Talskona sýningarinnar er Ólöf Júlíusdóttir, sími: 899 9748.
