Pakistan: Biðjum forsætisráðherra Pakistans um hjálp við að finna Sajid Mehmood

Förum fram á að Sajid Mehmood verði leystur úr haldi eða upplýst verði um hvar honum er haldið. 

Sajid Mehmood, hugbúnaðarverkfræðingur, hvarf frá heimili sínu í Islamabad fyrir sex árum. Fjölskylda Sajid varð vitni að því þegar hann var numinn á brott og hefur barist fyrir lausn hans síðan. Dóttir hans, Aymun, hefur skrifað um þrekraunir fjölskyldunnar eftir hvarf hans. Aymun hefur skrásett allt sem fjölskyldan hefur þurft að ganga í gengum. 

Skráðu þig í sms-aðgerðanetið hér.

Aðstæður fjölskyldu Sajid eru ekki einsdæmi. Þvinguð mannshvörf hafa verið algeng í Pakistan síðan á níunda áratugnum og eru enn.  

Þvinguð mannshvörf eru glæpur samkvæmt alþjóðalögum og brot á mannréttindum. Binda verður enda á þessar grimmilegu aðgerðir. Sameina verður fjölskyldur ástvinum sínum. 

Sms-aðgerðanetið krefst þess að Sajid Mehmood verði leystur úr haldi strax eða mál hans fari fyrir dóm.