Réttindi útskýrð: Mannréttindi og vopnuð átök

Íslands­deild Amnesty Internati­onal hefur gefið út fræðsluefnið Réttindi útskýrð sem eru tvö fræðslu­hefti sem fjalla um mann­rétt­indi og vopnuð átök. 

Í fyrra heftinu, Rétt­indi útskýrð: Jafnvel í stríði gilda reglur, eru alþjóðleg mann­úðar- og mann­rétt­indalög kynnt og farið yfir grund­vall­ar­at­riði þeirra, meðal annars hvað telst brot á þessum lögum og nauðsyn þess að virða og vernda mann­rétt­indi í vopn­uðum átökum. 

Seinna heftið, Rétt­indi útskýrð: Stig­vax­andi átök í Ísrael og á Gaza, byggir að miklu leyti á fyrra heftinu en kafar dýpra í átökin sem eiga sér stað í Ísrael og á Gaza. Veitt er yfirsýn yfir skyldur samkvæmt alþjóð­legum mann­úð­ar­lögum, farið yfir laga­lega ábyrgð aðila í átök­unum og lögð áhersla á skyldur þeirra hvað viðkemur vernd borgara, hátt­semi í átökum og  mann­úð­ar­að­stoð. 

Réttindi útskýrð hentar flestum aldurshópum, þó sérstaklega í framhaldsskólum og eldri deildum grunnskóla, og er tilvalið fyrir alla sem vilja dýpka þekkingu sína á alþjóðalögum og hlutverki þeirra þegar kemur að átökum. Stríð og vopnuð átök eru mikið til umræðu þessa dagana. Mikilvægt er að nemendur fái rými til þess að fræðast um málefni líðandi stundar og varpa fram spurningum og vangaveltum.

Fræðsluheftin

1.hefti – Rétt­indi útskýrð: Jafnvel í stríði gilda reglur

2. hefti – Rétt­indi útskýrð: Stig­vax­andi átök í Ísrael og á Gaza

Annað fræðsluefni:

Verkefnakista með ýmsu fræðsluefni