Sádí-Arabía: Stöðvið yfirvofandi aftökur tveggja manna frá Barein

Jaafar Mohammad Sultan og Sadeq Majeed Thamer eiga yfir höfði sér aftökur. Sérstaki sakamáladómstóllinn dæmdi þá til dauða í október 2021 eftir afar ósanngjörn réttarhöld vegna hryðjuverkatengdra ákæra, sem fela í sér smygl á sprengiefni til Sádí-Arabíu og þátttöku í mótmælum gegn stjórnvöldum í Barein. Í apríl 2022 staðfesti hæstiréttur dóminn og aftaka þeirra varð yfirvofandi um leið og konungur fullgildir hann.  

SKRÁÐU ÞIG Í SMS-AÐGERÐANETIÐ HÉR!

Amnesty International skorar á yfirvöld í Sádi-Arabíu að fullgilda ekki dauðadóminn, ógilda sakfellingu þeirra og dæma aftur í samræmi við alþjóðleg lög.

Lestu um nýútkomna skýrslu Amnesty um dauðarefsingar