Síle: Kallað eftir réttlæti fyrir mótmælanda sem lögreglan réðst á

Lögregla réðst á Moisés Órdenes í október 2019 þegar hann var að mótmæla friðsamlega í Santiago í Síle. Moisés var að berja í pönnu með sleif og taka upp mótmælin þegar hópur lögreglumanna réðst skyndilega á hann. Hann féll til jarðar við árásina og var ítrekað barinn. Árásin var sýnd í beinni útsýningu í sjónvarpsfréttum.

Þremur árum síðar hefur saksóknari í Santiago lokað máli sjö þeirra 13 lögreglumanna sem voru ákærðir. Fjölskylda Moisés og lögfræðingar hans segja rannsóknina ekki fullunna.  

SMS-félagar kalla á saksóknara að opna á ný rannsókn þessara sjö lögreglumanna og tryggja réttlæti í máli Moisés Órdenes.  

Á mótmælum í Santiago í Síle árið 2019 – mynd: Jeremias Gonzalez/NurPhoto via Getty Images