Sýningin ,,Dropar af regni” í göngum Blöndustöðvar í Húnaþingi

Sýningin ,,Dropar af regni: Amnesty International á Íslandi 30 ára” hefur verið sett upp í göngum Blöndustöðvar í Húnaþingi. Sýningin sem er farandsýning var fyrst sett upp í Ráðhúsi Reykjavíkur, þaðan fór hún í Smáralind og síðan í Öskju, byggingu Háskóla Íslands

Sýningin gefur ágrip af þeim fjölda einstaklinga sem félagar Íslandsdeildar Amnesty International hafa átt þátt í að frelsa síðustu 30 árin. Þessir einstaklingar voru fangelsaðir fyrir þær sakir einar að tjá trú sína eða skoðanir, eða vegna kyns síns og uppruna. Þessa einstaklinga kallar Amnesty International samviskufanga.

Heiti sýningarinnar er tekið úr þakkarbréfi samviskufangans Mohamed El Boukili frá Marokkó, sem lét svo um mælt árið 1994:

,,Á dimmustu tímum fangavistar minnar komu orð ykkar og bréf sem dropar af regni, sem lengi hefur verið beðið eftir í endalausri eyðimörk. Frelsi mitt í dag er ávöxtur þols ykkar og þreks, vinnu og hugrekkis”.

Amnesty félagar vinna að því að fá leysta úr haldi þær hundruð þúsunda fanga, sem sitja í fangelsum um heim allan vegna friðsamlegrar tjáningar skoðana sinna eða trúarbragða. Þeir skrifa bréf til valdhafa og þrýsta á stjórnvöld, sem ábyrgð bera á slíkum mannréttindabrotum, og til fanganna sjálfra, til að glæða vonir þeirra og trú á framtíðina, þó að þeir dvelji iðulega við hræðilegar aðstæður og megi þola pyndingar og illa meðferð. Í texta þessarar sýningar má sjá tilvitnanir í nokkur þeirra þakkarbréfa, sem að fangarnir hafa skrifað til Amnesty félaga.

Þeir félagar sem leið eiga um Húnaþing eru hvattir til að skoða sýninguna á þessum óvenjulega sýningastað sem er 200 m ofan í jörðinni. Á sýningunni er að finna frásagnir fólks sem við höfum getað hjálpað í gegnum árin en enn þá eru margir sem enn sæta mannréttindabrotum og þurfa á aðstoð Amnesty að halda. Þið eruð hvött til að taka þátt í aðgerðum sem nú standa yfir. Leiðbeiningar og tilbúin bréf finnið þið á slóðinni: http://www.amnesty.org/actnow/index.html