Þín þátttaka hefur áhrif

Stærsta mannréttindaherferð heims, Þitt nafn bjargar lífi (áður Bréf til bjargar lífi), stækkar enn með hverju árinu. Herferðin í fyrra var engin undantekning þar sem fjöldi fólks tók þátt og skrifaði undir milljónir bréfa sem breyttu lífi baráttukvenna fyrir mannréttindum í þeim tíu málum sem herferðin beindi sjónum sínum að.

Bréfin og undirskriftirnar komu í tuga, hundraða og þúsunda tali. Frá nemendum, foreldrum, kennurum og vinum. Venjulegt fólki sem gaf sér tíma til að skrifa til stuðnings ókunnugra kvenna. Samtals voru bréfin og undirskriftirnar 5.911.113 talsins í fyrra á þessum stærsta alþjóðlega mannréttindaviðburði heims. Það var ekki aðeins magnað að sjá alla þennan fjölda þátttakenda heldur einnig áhrifin sem þeir höfðu á líf baráttukvennanna sem studdar voru á síðasta ári.

SVONA HAFÐI ÞÁTT­TAKA ÞÍN ÁHRIF

BRÝN LÆKNISAÐSTOÐ VEITT Í ÍRAN

Atena Daemi, sem var fangelsuð fyrir að dreifa bæklingum þar sem dauðarefsing var harðlega gagnrýnd, hefur þurft að þola líkamlegt ofbeldi á meðan hún hefur setið í fangelsi. Hún þurfti nauðsynlega á sértækri læknisþjónustu að halda og þökk sé yfir 700 þúsund undirskriftum einstaklinga um heim allan hefur henni nú verið veitt sú meðferð sem hún þurfti á að halda.

„Ég er svo óendanlega þakklát öllu því fólki, hvaðanæva úr heiminum, sem hefur sýnt mér samkennd og góðvild og virkilega lagt sig fram um að styðja mig.“

BRÉFIN VEITTU STYRK Í VENESÚELA

Geraldine Chacón, ungur aðgerðasinni frá Venesúela, var í stöð­ugri hættu á að vera send í fang­elsi fyrir að fræða ungt fólk um rétt­indi sín.

„Ég hafði áður stutt herferðina, Þitt nafn bjargar lífi, en ég hefði aldrei getað ímyndað mér að vera hinum megin við borðið sem eitt af málum herferð­ar­innar. Ég get ekki komið orðum að því hversu þakklát ég er Amnesty fyrir allt það sem samtökin hafa gert fyrir mig. Bréf hafa mátt til að breyta slæmum degi í gleði­legan dag.“

SIGUR FYRIR FATLAÐ FÓLK Í KIRG­ISTAN

Gulzar Duis­henova hefur lengi barist fyrir rétt­indum fólks með fötlun í heimalandi sínu. Í mars 2019 fékk hún umbun erfiðis síns þegar Kirg­istan undir­ritaði loks samning Sameinuðu þjóð­anna um rétt­indi fatlaðs fólks.

„Ég er þakklát fyrir þann stuðning og þá samstöðu sem ég hef notið af hálfu aðgerða­sinna Amnesty Internati­onal, sem stendur ekki á sama um rétt­indi okkar hér í Kirg­istan þrátt fyrir að vera annars staðar frá.“

Gulzar Duishenova frá Kirgistan. Þitt nafn bjargar lífi 2018

ENN STAÐFASTARI Í BARÁTTUNNI Í SUÐUR-AFRÍKU

Nonhle Mbuthuma sem er í forsvari fyrir samfélag sitt hefur barist gegn því að námufyrirtæki grafi eftir títani á landi forfeðra sinna í Suður-Afríku. Baráttan hefur stofnað lífi hennar í hættu. Nonhle hefur þurft að þola áreitni og hótanir auk morðtilraunar.

„Sumt baráttufólk hefur verið myrt og ég veit að það getur komið fyrir mig líka. En ég er ekki hrædd.“

Rúmlega hálf milljón einstaklinga greip til aðgerða fyrir Nonhle.

Ég vil þakka Amnesty á heimsvísu, stuðningur samtakanna var ótrúlegur og skipti miklu máli. Þau þúsundir bréfa sem við fengum sýnir að þessi barátta snýst ekki bara um okkur, við stöndum ekki ein. Þau sýna að jörðin okkar er mikilvæg og ekki bara í Afríku. Við fengum bréf frá Þýskalandi, Svíþjóð, Noregi og Frakklandi. Við viljum öll frið og án lands er enginn friður.“

Nonhle Mbuthuma

HANDTÖKUR Í BRASILÍU

Í mars 2019 voru tveir fyrrverandi lögreglumenn handteknir fyrir morðið á Marielle Franco, stjórnmálakonu og málsvara þeirra allra fátækustu í Brasilíu. Handtökurnar marka lítið skref í átt að réttlæti. Samanlagt skrifaði fólk um heim allan meira en 500 þúsund bréf til yfirvalda í Brasilíu þar sem krafist var réttlætis fyrir Marielle.

„Að vita af þessum mikla alþjóðlega hlýhug hjálpar mér að fara fram úr rúminu á morgnana. Allur þessi kærleikur og hlýhugur hefur hjálpað okkur að krefjast réttlætis í krafti fjöldans, að þrýsta á rannsókn og fyrst og fremst berjast fyrir því að það sem kom fyrir Marielle endurtaki sig ekki.“

Monica Benicio, sambýliskona Marielle, aðspurð hvað herferðin þýddi fyrir hana

EKKI BARA UNDIRSKRIFT

Hvernig getur bréf, undirskrift eða tíst haft einhver áhrif? Baráttukonurnar sem voru hluti af herferðinni í fyrra fundu fyrir áhrifunum eins og dæmin hér fyrir ofan sýna. Þær fundu fyrir stuðningi og samstöðu úr öllum heimshornum. Þessi stuðningur veitti þeim huggun á erfiðum tímum og kall þeirra eftir réttlæti varð enn sterkara. Í sumum tilfellum náði kallið til valdhafa sem tóku sig á og bættu úr stöðu kvennanna.

Nú í lok árs 2019 hefst herferðin, Þitt nafn bjargar lífi, enn á ný. Í ár stöndum við með ungu fólki víðsvegar að úr heiminum. Ungu fólki sem er í hættu vegna þess að hinir fullorðnu hafa brugðist því.

Þetta unga fólk þarf þig í lið með sér.

Þitt nafn bjargar lífi. Skrifaðu undir núna!