Þitt nafn bjargar lífi: Magai laus úr haldi í Suður-Súdan

Þitt nafn bjargaði lífi Magai árið 2020 þegar dauðadómur var felldur úr gildi. Nú er hann laus úr haldi. Magai Matiop Ngong var leystur úr haldi í Suður-Súdan þann 22. mars 2022. Mál hans var eitt af málum okkar í árlegri herferð, Þitt nafn bjargar lífi, árið 2019. Hann var aðeins 15 ára þegar hann var dæmdur til dauða. Í kjölfar herferðar okkar var dauðadómur yfir honum felldur úr gildi í júlí 2020 á þeim forsendum að hann var barn að aldri þegar dómur var kveðinn upp. Það stríðir gegn alþjóðlegum mannréttindalögum og lögum Suður-Súdan að dæma einstakling til dauða sem er barn að aldri þegar glæpurinn er framinn.   

Magai sat tvö ár og átta mánuði á dauðadeild. Hann var dæmdur til dauða fyrir morð en hann hefur ávallt haldið því fram að um slys hafi verið að ræða. Í réttarhöldunum hafði Magai engan lögfræðing sér til varnar. Fjölskylda fórnarlambsins áfrýjaði ógildingu dauðadómsins en áfrýjunardómstóll staðfesti fyrri niðurstöðu og fór fram á ný réttarhöld.

Í kjölfar nýrra réttarhalda var Magai dæmdur í fimm ára fangelsi og hlaut að auki sekt. Hann hefur nú setið af sér dóminn þar sem hann var handtekinn árið 2017. Mál Magai er þó ekki einsdæmi í Suður-Súdan. Vitað er um fjóra einstaklinga á árunum 2017-2019 sem voru teknir af lífi fyrir glæp sem var framinn þegar viðkomandi var undir 18 ára aldri. Amnesty International er á móti dauðarefsingunni í öllum tilvikum. 

Um heim allan gripu 765.000 einstaklingar til aðgerða til stuðnings Magai í herferðinni Þitt nafn bjargar lífi. Á Íslandi söfnuðust hvorki meira né minna en 8.630 undirskriftir honum til stuðnings.  

Enn og aftur hefur samtakamátturinn áhrif. Við þökkum öllum sem tóku þátt stuðninginn. 

Magai Matiop Ngong – Þitt nafn bjargar lífi 2019