Þitt nafn bjargar lífi viðburðir

Herferðin Þitt nafn bjargar lífi gengur vel í ár líkt og áður. Undirskriftum er safnað víðs vegar um heim til stuðnings níu einstaklingum og hópum sem þolað hafa mannréttindabrot. Fjölmargar fræðslur um herferðina hafa verið í skólum, bæði framhalds- og grunnskólum. Á döfinni eru fjölbreyttir viðburðir og undirskriftasafnanir í tengslum við herferðina.

Viðburðir í Reykjavík

Undirskriftasöfnun í Kringlunni fimmtudaginn 28. nóvember kl. 16-18.

Ungliðahreyfing Íslandsdeildarinnar og nemendur úr IB námi í MH safna undirskriftum og verða með bás fyrir utan HM á 2. hæð í Kringlunni.

Spurningakeppnin Drekktu betur á Ölstofunni föstudaginn 29. nóvember kl. 18-19:30.

Íslandsdeildin er með spurningakeppni númer 1059 í samstarfi við Ölstofuna sem er haldin þar vikulega. Spurningarnar eru um allt milli himins og jarðar en þó er herferðinni og mannréttindum einnig fléttað inn í með fjölbreyttum hætti.

Litlu-jól ungliðahreyfingarinnar á skrifstofu Íslandsdeildar Amnesty International fimmtudaginn 5. desember kl. 18-20.

Ungu fólki býðst að skrifa stuðningskveðjur til þolenda mannréttindabrota í herferðinni í ár. Þetta er síðasti opni fundur ungliðahreyfingarinnar á þessu ári og búast má við hátíðarbrag á fundinum.

Þitt nafn bjargar lífi viðburður í Bíó Paradís 10. desember kl. 18-19

Notaleg stund fyrir frumsýningu á heimildamyndinni Vonarljós sem er gefin út í tilefni af 50 ára afmæli Íslandsdeildarinnar. Smákökur og kaffi á boðstólnum undir ljúfum harmónikkutónum Margrétar Arnardóttur. Boðið verður upp á að skrifa stuðningskveðjur til þolenda mannréttindabrota í herferðinni í ár til að veita þeim styrk og halda á lofti vonarljósinu.

Viðburðir á landsbyggðinni

Ásbyrgi

Jólamarkaður Ásbyrgi, laugardaginn 30. nóvember kl 12 -16

Kópasker

Skerjakolla Kópasker, föstudaginn 6. desember kl. 13 -18 og föstudaginn 13.desember kl. 13 -18

Raufarhöfn

Jólamarkaður í Breiðabliki, húsi eldri borgara á Raufarhöfn, laugardaginn 7. desember kl. 14. – 17

Akureyri

Háskólinn á Akureyri, föstudaginnn 6. desember kl. 12-13

Amtsbókasafnið, laugardaginn 7. desember kl. 13-15

Penninn Eymundsson, sunnudaginn 8. desember kl. 13-15

Þátttaka bókasafna

Bókasafn Héraðsbúa Egilsstaðir

Bókasafnið á Hellu

Bókasafn Árborgar

Bókasafn Rangæinga

Bókasafn Húsavíkur

Bókasafn Dalvíkurbyggðar

Borgarbókasafn, Grófinni

Bókasafnið Klébergi

Borgarbókasafn, Grófinni

Bókasafnið Úlfársdal

Bókasafnið Sólheimum

Bókasafnið Klébergi