Hundruð þúsunda Afríkubúa um alla álfuna missa húsnæði sitt á hverju ári þegar yfirvöld þvinga þá úr húsum sínum.
Hundruð þúsunda Afríkubúa um alla álfuna missa húsnæði sitt á hverju ári þegar yfirvöld þvinga þá úr húsum sínum. Oftast fer útburðurinn fram án þess að farið sé að reglum, án viðvarana, viðræðna og skaðabóta. Í stað þess að bæta húsnæðiskost fólks og lífsskilyrði, sérstaklega þeirra sem búa við sárustu fátæktina, hrekja margar ríkisstjórnir fólk út í enn meiri fátækt. Fólk er þvingað af heimilum sínum án þess að annað húsnæði sé í boði og samfélög leysast upp. Fólkið missir ekki einungis heimili sín og þær fáu veraldlegu eigur sem því hefur hlotnast, heldur glatar það ennfremur samfélagslegum stuðningi. Þvinguðum brottflutningi fylgir oft skortur á aðgangi að hreinu vatni, fæði, skolpræsum, atvinnu, heilbrigðisþjónustu eða menntun.
Á undanförnum árum hefur Amnesty International skráð tilvik um þvingaðan brottflutning í Angóla, Tsjad, Miðbaugs-Gíneu, Gana, Kenía, Nígeríu, Súdan, Svasílandi og Simbabve. Fulltrúar yfirvalda beita oft ofbeldi og jafnvel skotvopnum. Fólk hefur látið lífið í aðgerðunum eða í kjölfar þeirra, þar á meðal börn.
Þvingaður brottflutningur fólks af heimilum sínum er gróft mannréttindabrot sem samstundis ber að stöðva. Verði ríkisstjórnir ekki látnar bera ábyrgð á þvinguðum brottflutningi mun fólk áfram sæta þessum grófu mannréttindabrotum.
Amnesty International skorar á leiðtoga Afríku að stöðva þessi mannréttindabrot.
Húsaskjól er mannréttindi
Fjölskylda er missti heimili sitt í þvinguðum brottflutningi í Simbabve
Frá 5. október 2009 sem er alþjóðlegur dagur búseturéttinda (World Habitat Day) mun fólk alls staðar að úr Afríku bæta nafni sínu á „hús undirskriftanna“ (hús prentað á stóran dúk) en húsið er hugsað sem táknræn krafa um réttinn til húsaskjóls. Nokkur „húsanna” verða sýnd afrískum leiðtogum sem eru í aðstöðu til að binda endi á þvingaðan brottflutning í álfunni. Önnur verða færð baráttufólki fyrir mannréttindum til að sýna þeim stuðning í því að stöðva þvingaðan brottflutning en baráttu þeirra er gjarnan mætt með kúgun.
Íslandsdeild Amnesty International mun vera með „hús undirskriftanna“ í Smáralind, þar sem fólki gefst kostur á að setja nafn sitt á húsið, sem síðan verður sent til stjórnvalda í Nígeríu, þar sem þvinguðum brottflutningi hefur verið beitt í miklum mæli.
Húsið er hluti af táknrænni aðgerð í Smáralind til stuðnings fólki sem sætir þvinguðum brottflutningi víða í Afríku. Ljósmyndir verða til sýnis, aðgerðakortum dreift, boðið upp á heimsókn í hreysi og heitt afrískt te.
Íslandsdeild Amnesty International hvetur fólk til að koma í Smáralind laugardaginn 10.október milli klukkan 13:00 og 16:00.
Vinsamlegast láttu sem flesta vita af viðburðinum.
