Tónleikar með tilgang!

Fimmtudaginn 6. mars ætla Samtökin ’78 & Íslandsdeild Amnesty International, ásamt nemum í tómstunda- og félagsmálafræði að standa fyrir styrktartónleikum. 

Þann 6. mars ætla Samtökin ’78 og Íslandsdeild Amnesty International, ásamt nemum í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands að standa fyrir styrktartónleikum. 

Á tónleikunum koma fram Hinsegin kórinn, Sigga Beinteins & Stjórnin, Páll Óskar, Sykur og Retro Stefson. 

Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00 í Hörpu, Norðurljós og munu standa í um tvo tíma. Miðaverð er aðeins 2000 kr og rennur allur ágóði óskiptur til hinsegin fólks í Úganda.

Mannréttindi hinsegin fólks í Úganda eru fótum troðin og nú á dögunum var frumvarp þar í landi samþykkt sem kveður á um lífstíðarfangelsi við samkynhneigð í landinu. Með því hefur rótgróið hatur og mismunun gagnvart þeim sem eru eða teljast hinsegin, verið fest í sessi.
Samtökin ´78 og Íslandseild Amnesty International styðja úgönsk grasrótarsamtök hinsegin fólks í baráttu þeirra fyrir mannréttindum sínum.

Eftir að Íslandsdeild Amnesty International bauð lesbísku baráttukonunni Köshu til Íslands í fyrra ákváðu Samtökin ´78 að hefja samstarf við baráttusystkini í Úganda.

Tilgangur styrktartónleikana er að vekja athygli Íslendinga á stöðu hinsegin fólks í Úganda sem og að afla fjár fyrir grasrót hinsegin fólks í Úganda, svo þau geti hratt og örugglega unnið gegn hatri og fordómum.