Yfirvofandi hætta á aftöku

Íranski/sænski fræðimaðurinn Ahmadreza Djalali hefur verið í einangrunarvist í fangelsi í Tehran síðan 24. nóvember 2020 þegar hann fékk þær fréttir að aftaka hans væri yfirvofandi. Seint í desember bárust þær fréttir að aftökunni hefði verið frestað um mánuð. Enn er hætta á að hann verði tekinn af lífi á næstunni.

Taktu þátt í starfi Amnesty og skráðu þig í sms-aðgerðanetið hér!

Ahmadreza Djalali starfaði sem  læknir og fræðimaður í Svíþjóð en hann var í vinnuferð í Íran þegar hann var handtekinn í apríl 2016. Honum var haldið í þrjá mánuði í einangrun án þess að fá aðgang að lögfræðingi. Hann var sakaður um njósnir og að hans sögn sætti hann illri meðferð og pyndingum  í þeim tilgangi að ná fram falskri játningu. Ahmadreza Djalali heldur fram sakleysi sínu og segir ástæðuna fyrir þessum ásökunum vera sú að  að hann hafi neitað að njósna fyrir írönsk stjórnvöld. Hann var dæmdur til dauða fyrir „spillingu á jörðu“ í október 2017 eftir mjög ósanngjörn réttarhöld.

Amnesty fordæmir dauðarefsingar og er alfarið á móti þeim í öllum tilfellum undir öllum kringumstæðum.

SMS-félagar krefjast þess að hætt verði við áform um að taka Ahmadreza Djalali af lífi og séð verði til þess að honum verði veittur aðgangur að lögfræðingi og hann fái fjölskylduheimsóknir.