Marokkó: Femínisti og hinsegin aðgerðasinni í haldi fyrir friðsamlega tjáningu

Ibtissame Lachgar („Betty“), marakóskur femínisti og baráttukona fyrir hinsegin réttindum, afplánar 30 mánaða fangelsisdóm. Hún var sakfelld fyrir að „skaða íslam“ fyrir að birta mynd af sér á samfélagsmiðlum í stuttermabol með slagorðinu „Allah er lesbía“.

Marakóska lögreglan handtók Ibtissame Lachgar 10. ágúst 2025 og sætti hún gæsluvarðhaldi á meðan rannsókn stóð yfir á hvort hún hafi „vísvitandi móðgað íslam eða helg tákn“. Hún var sakfelld 3. september á lægsta dómstigi, fékk tveggja og hálfs árs fangelsisdóm og þarf að greiða 50.000 dirhams í sekt (í kringum 700.000 ISK). Þann 8. október 2025 staðfesti áfrýjunardómstóll sakfellinguna og dóminn.

SMS-félagar krefjast þess að yfirvöld leysi Ibtissame Lachgar tafarlaust úr haldi og ógildi sakfellinguna og dóminn þar sem hún er í haldi fyrir það eitt að nýta tjáningarfrelsið.

Ibtissame Lachgar