Tansanía: Gagnrýnandi stjórnvalda horfinn

Humphrey Polepole var rænt í Dar es Salaam þann 6. október 2025 af óþekktum fulltrúum öryggissveita.

Hann er opinskár gagnrýnandi stjórnvalda og hefur gagnrýnt Samia Suluhu Hassan forseta Tansaníu og stjórnmálaflokkinn Chama Cha Mapinduzi (CCM) fyrir skerðingu  borgaralegu rými, aðför að mannréttindum og árásir á stjórnarandstæðinga, þar á meðal fangelsun stjórnarandstæðingsins Tundu Lissu.

SMS-félagar krefjast þess að yfirvöld í Tansaníu upplýsi tafarlaust um örlög hans og hvar hann er niðurkominn. Einnig er þess krafist að hann sé leystur úr haldi tafarlaust ef hann er í haldi þeirra.

Humphrey Polepole