Víetnam: Aðgerðasinni í einangrun

Bùi Tuấn Lâm, þekktur núðlusali, hefur sætt fangavist frá 2023 í Xuân Lộc fangelsi í Đồng Nai-héraði fyrir myndbönd á samfélagsmiðlum um samfélagsmál og mannréttindi.

Frá apríl 2025 hefur hann sætt pyndingum og annarri illri meðferð án aðgangs að hreinu vatni, rafmagni og birtu.  Sjón hans fer versnandi þar sem honum hefur verið haldið föngum í dimmum klefa. Án umbóta á aðstæðum í fangelsinu eru miklar líkur á að heilsa hans versni enn frekar. 

Bùi Tuấn Lâm var handtekinn fyrir það eitt að nýta tjáningarfrelsið.

SMS-félagar krefjast þess að hann verði tafarlaust leystur úr haldi án skilyrða.