Fataiðnaðurinn í helstu framleiðslulöndunum græðir á að verkafólki er meinað að stofna stéttarfélög
Nýlegar skýrslur Amnesty International sýna fram á að stór tískufyrirtæki hagnast á láglaunuðu vinnuafli kvenna sem sætir þöggun. Fram kemur í nýlegum skýrslum Amnesty International að ríkisstjórnir, verksmiðjur og alþjóðleg tískufyrirtæki hagnist á kúgun verkafólks í fataiðnaði og brotum á vinnuréttindum í Bangladess, Pakistan, á Srí Lanka og Indlandi.
