Heilsa mannréttindafrömuðs í haldi er í hættu
Ibrahim Ezz el-Din, rannsakandi á sviði mannréttinda, var handtekinn þann 11. júní 2019 og fyrstu 167 dagana vissi fjölskylda hans ekki um afdrif hans þar sem hann sætti þvinguðu mannshvarfi af hálfu stjórnvalda. Varðhald yfir honum var framlengt um 45 daga þann 31. október 2020. Hann sætti pyndingum í varðhaldi og heilsu hans hefur hrakað síðan hann var handtekinn. Hann er í áhættuhópi vegna áhrifa COVID-19 sem hefur verið að dreifast hratt í yfirfullum fangelsum í Egyptalandi.
