Filippseyjar: Skýrsla SÞ í kjölfar ályktunar Íslands sýnir brýna þörf á alþjóðlegri rannsókn
Þann 4. júní síðastliðinn kom út skýrsla Sameinuðu þjóðanna um ástand mannréttinda á Filippseyjum. Þar er greint frá aftökum án dóms og laga ásamt öðrum mannréttindabrotum í nafni svokallaðs „stríðs gegn fíkniefnum“ sem Duterte forseti landsins stendur fyrir auk árása gegn fjölmiðlum, mannréttindafrömuðum og pólitískum aðgerðasinnum.
