160 einstaklingum haldið í ferjum á sjó
Stjórnvöld á Möltu hafa haldið 160 einstaklingum í tveimur ferjum ætluðum ferðamönnum undan ströndum landsins undir því yfirskini að þau geti ekki lagst að landi vegna kórónuveirufaraldursins. Fólkið var fært í ferjurnar eftir að þeim var bjargað úr öðrum minni bátum á Miðjarðarhafinu dagana 29. apríl og 7. maí. Ástandið um borð í ferjunum er hrikalegt þar sem þær eru ekki gerðar til langtímadvalar. Maltnesk stjórnvöld þurfa að koma fólkinu í land hið fyrsta, tryggja þeim öruggar móttökur og aðgang að umsókn um vernd.
Þann 29. apríl var 57 einstaklingum bjargað af fiskibát og í kjölfarið komið um borð í skipið Europa II. Tveimur öðrum hópum var svo bjargað 7. maí, annars vegar 45 einstaklingumog hins vegar 78 einstaklingum, um borð í fiskibát og hraðbát maltneska hersins. Fjölskyldum, þar á meðal átján konum og börnum, var leyft að fara í land á Möltu en hinir 105 einstaklingar voru færðir í ferjuna Bahari og síðar í ferjuna Atlantis. Fólkið hefur verið látið dúsa þar síðan en þessar ferjur eru ætlaðar sem skemmtiskip en ekki til langtímadvalar. Maltnesk yfirvöld útveguðu fólkinu dýnur og mat og fregnir herma að COVID-19 skimun hafi farið fram. Hins vegar hafa fjölmiðlar og óháð félagasamtök flutt fréttir af grafalvarlegu ástandi um borð. Andleg líðan fólksins fer versnandi og það er óttaslegið og haldið kvíða. Nokkrir aðilar eru sagðir í hungurverkfalli og enn aðrir hafa að sögn reynt sjálfsvíg.
Maltnesk stjórnvöld halda fast í þá afstöðu sína að hleypa ekki fleirum inn í landið og hafa einnig gripið til þeirra aðgerða að ráða einkafyrirtæki til að halda fólki sem hefur verið bjargað á sjó frá því að komast í land á Möltu. Í sumum tilfellum hafa stjórnvöld jafnvel fyrirskipað að sigla fólkinu til Líbíu. Að senda flóttafólk til Líbíu stríðir gegn alþjóðlegum og evrópskum mannréttinda- og flóttamannalögum.
Krefstu þess að maltnesk stjórnvöld stöðvi þær aðgerðir að halda fólki um borð í Europa II og Atlantis núna strax! Einnig að fólkinu verði komið örugglega í land og fái þar aðgang að viðeigandi aðstoð og geti sótt um alþjóðlega vernd sé þess óskað.
