Aðgerðasinna haldið án ákæru í 200 daga
Friðaraðgerðasinninn Abdul Karim Ali hefur verið í haldi að geðþótta án ákæru í Kamerún síðan 11. ágúst 2022.
Yfirvöld hafa ekki lagtfram formlega kæru vegna varðhalds hans. Hann var yfirheyrður í nokkur skipti vegna myndbands sem hann birti á Youtube þann 9. júlí 2022 þar sem hann fordæmdi herforingja í kamerúnska hernum fyrir meintar pyndingar. Tveir vinir Abdul Karim hafa líka verið færðir í gæsluvarðhald eftir að hann var handtekinn.
Skrifaðu undir og kallaðu eftir því að kamerúnsk stjórnvöld sleppi Abdul Karim og vinum hans strax úr haldi nema þeir verði ákærðir fyrir viðurkennd refsiverð brot.
