Alþingismenn leiti allra leiða til að stöðva hópmorðið á Gaza

Ísrael fremur hópmorð (e. genocide) á Palestínubúum á Gaza. Við krefjumst þess að alþingismenn Íslands geri allt sem í þeirra valdi stendur til að stöðva það. Sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um ráðstafanir gegn og refsingar fyrir hópmorð skuldbindur ríki um allan heim til að gera sitt besta til að koma í veg fyrir að hópmorð séu framin.  

Nú nýverið, í 60. lotu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna þann 16. september 2025, var lögð fram skýrsla frá sjálfstæðri rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna um hernumda svæðið í Palestínu. Nefndin hefur komist að þeirri niðurstöðu að Ísrael fremji hópmorð á Gaza og bættist þar með við í hóp fjölda mannréttindasamtaka og sérfræðinga sem hafa komist að sömu niðurstöðu, þeirra á meðal Amnesty International.

Skýrsla Amnesty International um hópmorð Ísraels á Gaza,You Feel Like You Are Subhuman”: Israel’s Genocide Against Palestinians in Gaza, var gefin út í desember 2024. 

Samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar er greinilegt að útrýming Palestínubúa á Gaza er ætlun Ísraels, hvort sem Ísrael sjái útrýmingu Palestínubúa sem nauðsynlegan þátt í að útrýma Hamas eða sem ásættanlega aukaafleiðingu þessa markmiðs.   

Íslandsdeild Amnesty International hefur áður kallað eftir því að utanríkisráðherra Íslands grípi til aðgerða til að stöðva hópmorðið en í ljósi sífellt alvarlegrar stöðu á Gaza eru frekari aðgerðir nauðsynlegar og skorum við því á alþingismenn að leita allra leiða til að íslensk stjórnvöld: 

  • Viðurkenni að Ísrael fremur hópmorð (þjóðarmorð) á Palestínubúum á Gaza.  
  • Haldi áfram að krefjast tafarlauss og varanlegs vopnahlés.  
  • Andmæli öllum tilraunum Ísraels til að koma á varanlegum ísraelskum her og ísraelskum landtökubyggðum á Gaza, breyta landamærum svæðisins og lýðfræðilegri samsetningu eða minnka landsvæðið.   
  • Styðji hópmorðsákæru Suður-Afríku á hendur Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag og leiti allra leiða til að tryggja að Ísrael framfylgi þeim bráðabirgðaráðstöfunum sem dómstóllinn hefur fyrirskipað í málinu. 
  • Fordæmi aðskilnaðarstefnu Ísraels, ómannúðlega herkví á Gaza og ólögmætt hernám á palestínsku svæði. 
  • Haldi áfram að styðja UNRWA og aðrar stofnanir Sameinuðu þjóðanna gegn árásum Ísraels og annarra ríkja.  
  • Leiti allra leiða til að tryggja mannúðaraðstoð fyrir íbúa Gaza.  
  • Banni flutninga um loft- og landhelgi Íslands á hergögnum og hvers kyns búnaði og tækjum sem notuð eru í hernaðarlegum tilgangi ef grunur er um að þau verði notuð í Ísrael og þar með hætta á að þau verði notuð til að fremja hópmorð.  
  • Banni innflutning á vörum frá landtökusvæðum Ísraels. 
  • Beiti Ísrael þvingunaraðgerðum, til að mynda ferðabanni og frystingu fjármuna tiltekinna einstaklinga og lögaðila sem eiga þátt í að Ísrael viðhaldi ólögmætu hernámi. 

Skrifaðu undir og krefstu þess að alþingismenn geri allt sem í þeirra valdi stendur til að stöðva hópmorðið á Gaza.

Ítarefni

FRÉTT: Skýrsla Amnesty International þar sem greint er frá 15 fyrir­tækjum sem stuðla að hópmorði Ísraels á Palestínu­búum, ólög­mætu hernámi og öðrum brotum á alþjóða­lögum. 

Hvers vegna notar Amnesty International hópmorð frekar en þjóðarmorð? 

Íslandsdeild Amnesty International notar orðið hópmorð í stað þjóðarmorðs fyrir enska orðið genocide til samræmis við íslensk lög. Hugtakið hópmorð nær þar með yfir aðra hópa eins og þjóðernishópa, kynstofna eða trúflokka en ekki eingöngu þjóð.   

Skilgreining á hópmorði 

Hópmorð samkvæmt sáttmála um ráðstafanir gegn og refsingar fyrir hópmorð er einn eða fleiri verknaðir af fimm sem eru framdir í þeim tilgangi að útrýma með öllu eða hluta þjóð, þjóðernishópi, kynstofni eða trúflokki sem slíkum, sem í þessu tilfelli eru Palestínubúar.  

Niðurstaða Amnesty International er sú að Ísrael hafi framið þrjá verknaði af fimm sem teljast hópmorð á Gaza.  

  1. að drepa einstaklinga úr viðkomandi hópi. 
  2. að valda einstaklingum úr viðkomandi hópi alvarlegum líkamlegum eða andlegum skaða. 
  3. að þröngva viðkomandi hópi af ásetningi til þess að búa við lífsskilyrði sem miða að líkamlegri eyðingu hópsins eða hluta hans. 

Skýrsla Amnesty International sýnir fram á ásetning um útrýmingu  

Í skýrslu Amnesty International er sýnt fram á ásetning um útrýmingu: 

  1. Hernaðaraðgerðir Ísraels gefa til kynna að markmiðið sé að útrýma Palestínubúum að fullu eða að hluta í ljósi:
  • umfangs tjóns og eyðileggingar á palestínskum heimilum, skýlum, sjúkrahúsum, mannvirkjum fyrir vatn og hreinlæti, landbúnaðarsvæðum og menningarverðmætum. 
  • hertrar herkvíar á Gaza og hindrunar á dreifingu mannúðaraðstoðar og nauðsynlegrar þjónustu til Gaza. 
  • ítrekaðra sprengjuárása sem valda mikilli eyðileggingu í þéttbýlum íbúðahverfum. 
  • gífurlegs mannfalls meðal óbreyttra borgara. 
  • árása sem ekki tengjast hernaðarlegum skotmörkum og beinast að óbreyttum borgurum. 
  • nauðungaflutninga fjölda óbreyttra borgara með víðtækum og oft villandi fyrirmælum um rýmingu. 
  1. Orðræða ísraelskra embættismanna:
  • Fjöldi yfirlýsinga embættismanna, heryfirvalda og þingmanna þar sem er hvatt til  aðgerða sem teljast til hópmorðs eða fela í sér afmennskun á Palestínubúum á Gaza. Samskonar talsmáti var ítrekað notaður af ísraelskum hermönnum sem gerðu árásir á Gaza og kölluðu meðal annars eftir því að „þurrka út“ Gaza.  

Amnesty International hefur skoðað alla þessa þætti í víðara samhengi við aðskilnaðarstefnu Ísraels, ómannúðlega herkví á Gaza og ólögmæts hernáms á palestínsku svæði í 57 ár, sem kúgað hefur Palestínubúa og valdið gríðarlegum mannlegum þjáningum.   

Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.