Áreitt fyrir að vernda land forfeðra sinna
Nonhle Mbuthuma neitar að láta undan. Hún leiðir baráttu fyrir samfélag sitt gegn námufyrirtæki sem vill vinna títaníum á landi forfeðra hennar. „Þegar þú tekur landið mitt þá tekurðu jafnframt persónuauðkenni mitt,“ segir Nonhle. Hún er áreitt fyrir það eitt að verja réttindi samfélagsins.
Nonhle tilheyrir samfélagi frumbyggja sem kallast Amadiba en þeir eiga samfélagslegan rétt á landi í austurhluta Suður-Afríku. Rúmlega 5000 einstaklingar munu sæta þvinguðum brottflutningi ef fyrirtækið fær leyfi til að stunda námugröft á landinu. Frumbyggjarnir eiga á hættu að missa heimili sín, glata lífsviðurværi sínu og lífsháttum sínum almennt.
Nonhle stofnaði Amadiba-nefnd um hættustjórnun í þeim tilgangi að sameina íbúa í fimm þorpum og spyrna við fótum. Allt frá stofnun nefndarinnar hefur stöðugt verið haft í hótunum við hana og hún lifað af morðtilræði. Annar leiðtogi Amadiba-samfélagsins var skotinn til bana árið 2016 og var Nonhle næst á lista yfir þá sem ryðja átti úr vegi. Hún telur að hótanirnar séu tilraun til að þagga niður í henni og þvinga hana til að flýja land. Nonhle er staðráðin í að spyrna við fótum. Eins og hún orðar það sjálf: „Þetta land var í eigu ömmu minnar sem erfði landið frá forforeldrum sínum. Hvað á ég að skilja eftir fyrir börnin mín? Námugröftur er ekki í boði.“
Krefðu stjórnvöld í Suður-Afríku um að vernda Nonhle strax og rannsaka hótanir gegn henni!
