Bandaríkin: Fordæmið aðgerðir Ísraels

Bandaríkin verða að þrýsta á Ísrael að takast á við rót vandans og binda enda á mannréttindabrot og óréttlæti. Það er tími til kominn að þrýst sé á Ísrael að takast á við rót vandans á svæðinu, nú þegar heimurinn horfir á stigvaxandi átök milli Ísraels og hernumdu svæða Palestínu.

Þessi stigvaxandi átök minna á fyrri árásir árið 2008, 2012 og 2014. Árásirnar bitna verst á óbreyttum borgurum, þar sem fjöldi fólks hefur látið lífið og gífurlegar eyðileggingar hafa orðið á Gaza-svæðinu. Ísrael hefur lengi brotið á mannréttindum þar sem óbreyttir borgarar hafa verið myrtir, þúsundir særðir og tugi þúsunda hafa sætt nauðungarflutningum auk eyðileggingar á innviðum, heimilum og atvinnurekstri. Þessi brot teljast til stríðsglæpa og glæpa gegn mannkyni. Palestínskir vopnaðir hópar hafa einnig brotið gegn alþjóðalögum og þar á meðal framið stríðsglæpi.

Rót vandans á þessum mannréttindabrotum sem eiga sér stað núna er kerfisbundin mismunun, eignarsvipting og nauðungarflutningar sem Palestínubúar hafa þurft að þola af hálfu Ísraels.

Ísraelsk stjórnvöld hafa haldið tveimur milljónum Palestínubúa á Gaza-svæðinu í ólöglegri herkví síðastliðin 14 ár, þar sem flæði fólks og varnings til og frá svæðinu er verulega hamlað. Fólkið þar býr í raun eins og í risastóru fangelsi. Ísraelsk stjórnvöld hafavöldin og lagalega skyldu til að afnema herkvína og leyfa íbúum Gaza að njóta réttinda sinna. Ísrael þarf að vernda óbreytta borgara og binda enda á þvingaða brottflutninga, eyðileggingu heimila og ólöglega landtöku.

Á þessari stundu eru Palestínubúar, þar á meðal í Sheikh Jarrah- hverfinu í Austur-Jerúsalem, að biðla til heimsbyggðarinnar um að þrýsta á Ísrael að stöðva þvingaða brottflutninga í hverfinu sínu og nauðungarflutninga Palestínubúa.

Bandaríkjunum, helsta bandalagsaðila Ísraels, ber skylda til að þrýsta á Ísrael að takast á við kerfisbundin mannréttindabrot gegn Palestínubúum.

Krefstu þess að Bandaríkin fordæmi opinberlega stríðsglæpi og önnur gróf mannréttindabrot á svæðinu, eins og stækkun landtökusvæða Ísraels á hernumdu svæðum Palestínu, herkví á Gaza-svæðinu og þvingaða brottflutninga Palestínubúa, eins og í Sheikh Jarrah.

Lestu nánar um ástandið hér

Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.