Bandaríkin: Lokið Gvantanamó-fangabúðunum
Í byrjun forsetatíðar Trumps Bandaríkjaforseta skrifaði hann undir forsetatilskipun þess efnis að herfangelsið í Gvantanamó yrði áfram haldið opnu. Síðan þá hafa engir nýir fangar komið þangað og aðeins einn verið fluttur þaðan. Biden, nýr forseti Bandaríkjanna, hefur nú tækifæri til að breyta þessari grimmilegu stefnu og loka fangabúðunum fyrir fullt og allt.
Enn eru 40 fangar, múslímskir karlmenn, þar í haldi í óákveðinn tíma. Flestir þeirra eru þar án ákæru og margir hafa sætt pyndingum. Enginn þessara fanga hefur fengið sanngjörn réttarhöld.
Fimm fangar í Gvantanamó fengu leyfi fyrir mörgum árum að vera fluttir til annars lands en þeim er samt sem áður enn haldið þar. Einn þeirra er Toffiq al-Bihani sem fékk leyfi til flutnings til annars lands árið 2010. Hann var pyndaður af leyniþjónustu Bandaríkjanna, CIA, áður en hann var fluttur í Gvantanamó árið 2003. Toffiq al-Bihani hefur enn ekki verið ákærður eða fengið réttarhöld.
Það er ljóst að þarna eiga mannréttindabrot sér stað og nú er það í höndum stjórnar Bidens að loka fangabúðunum í Gvantanamó.
Krefstu þess að bandarísk stjórnvöld loki Gvantanamó-fangabúðunum án tafar!
Amnesty International mælir með myndinni The Mauritanian sem byggð er á sannri sögu fanga í Gvantanamó-fangabúðunum.
Sjá sýnishorn hér:
