Bandaríkin: Verndið réttinn til þungunarrofs

Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur snúið við fordæmi dóms sem verndaði réttinn til þungunarrofs í landinu. Krefstu þess að ríkisstjórar í öllum ríkjum Bandaríkjanna komi í veg fyrir þungunarrofsbann og verndi réttinn til þungunarrofs. 

Dómur hæstaréttar leiðir til þess að ríki Bandaríkjanna ráða því sjálf hvort þau leyfi þungunarrof eða ekki. Í kjölfar dómsins hafa 26 ríki í Bandaríkjunum, fleiri en helmingur ríkja í landinu, þegar lagt bann á þungunarrof eða eru við það að gera það.  

Það er á hreinu að dómurinn er mikil afturför í mannréttindabaráttunni. 

Aðgengi að þungunarrofi eru mannréttindi. Samkvæmt alþjóðlegum mannréttindalögum hafa allir rétt á að lifa, rétt á heilsu og rétt á að lifa frjálsir gegn ofbeldi, mismunun, pyndingum eða annarri illri meðferð. Það er brot á þessum réttindum að neyða einstaklinga til að halda áfram meðgöngu gegn vilja þeirra, hver sem ástæðan er.  

Þungunarrof verður að vera löglegt, öruggt og aðgengilegt fyrir alla.  

Annars staðar í heiminum, þar á meðal í Suður-Ameríku, er verið að auka aðgengi fólks að þungunarrofi.

Skrifaðu undir og krefstu þess að Bandaríkin þrengi ekki að mannréttindum með banni við þungunarrofi.

Lestu meira: Niðurstaða hæstaréttar markar grimmileg þáttaskil

Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.