Berst fyrir réttindum fólks með fötlun
Gulzar Duishenova er baráttukona. Árið 2002 lenti hún í bílslysi vegna bílstjóra undir áhrifum áfengis og missti í kjölfarið hreyfigetu í fótleggjum. Ári síðar lést eiginmaður hennar skyndilega og hún var þá ein eftir til að sjá um tvö ung börn sín.
Nokkrum árum síðar hitti hún annað fólk með fötlun sem var að skipuleggja sig í höfuðborginni Bishkek. Hún áttaði sig á því að þau stóðu öll frammi fyrir svipuðum vandamálum, meðal annars erfiðleikum við að finna vinnu, því margir vinnustaðir voru ekki aðgengilegir fyrir hjólastóla, eða að þurfa að reiða sig á aðra til að lyfta sér upp í strætisvagna, sem er niðurlægjandi reynsla.
Hennar drifkraftur í lífinu er að tryggja að fólk með fötlun fái að lifa lífinu með reisn og geti ferðast að vild. Hún hefur hitt embættismenn, skipulagt þjálfun fyrir strætisvagnabílstjóra og kallað eftir aðgerðum á samfélagsmiðlum.
En hún stendur enn frammi fyrir hindrunum. Hún þarf aðstoð við að fara niður stiga við útidyrnar. Gatan hennar er holótt og ójöfn svo hún getur ekki ýtt sér áfram í hjólastólnum. Hún verður daglega fyrir mismunun í samfélagi þar sem konur eiga ekki að hafa hátt og litið er á fólk með fötlun sem „ónytjunga“ með ólæknandi sjúkdóm. En Gulzar lætur ekki þagga niður í sér. Stattu með henni í dag!
Skrifaðu undir og krefðu þannig stjórnvöld í Kirgistan um að styðja baráttu Gulzar fyrir breytingum.
