COP26: Íslensk stjórnvöld verða að grípa til aðgerða

Loftslagsváin er aðför að mannréttindum. Brýnt er að ríki á COP26  ráðstefnunni grípi strax til aðgerða til verndar mannréttindum.

Nú þegar má sjá hræðilegar afleiðingar loftlagsváar á mörgum stöðum í heiminum. Madaga­skar er á barmi þess að upplifa fyrstu hung­urs­neyð heimsins af völdum lofts­lags­breyt­inga, hitastig í Jacobabad í Pakistan fer reglulega yfir 50° c sem er talið ólíft fyrir manneskjur, öfgar í veðurfari verða tíðari og vara lengur. 

Skrifaðu undir ákall til íslenskra stjórn­valda

Kröfur til íslenskra stjórnvalda eru eftirfarandi:

  • Að ríki leggi sitt af mörkum til að koma í veg fyrir að hitastig jarðar hækki umfram 1,5 gráðu! Ríkisstjórnin verður að leggja fram nýja eða betrumbætta aðgerðaáætlun um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda, svokölluð landsákvörðuð framlög (e. Nationally Determined Contributions – NDC’s) í þeim tilgangi að draga úr meðalhækkun hitastigs jarðar með tilliti til getu ríkisins og ábyrgð á loftslagsvánni.
  • Að auka fjárframlög í loftslagsmálum og þannig leggja sitt af mörkum um þau áform að það safnist að minnsta kosti 100 milljarðar dollara (USD) á ári í sameiginlegan sjóð í formi styrkja frekar en lána. Mannréttindi og réttlæti eru í húfi fyrir viðkvæmustu samfélögin í heiminum sem hafa lítið sem ekkert gert til að valda loftslagsbreytingum en eru fyrst til að finna fyrir harkalegum afleiðingum þeirra.
  • Að fallast á nýja tilhögun, sem fjár­mögnuð er með auka­fjár­veit­ingu, til að auðugri ríki greiði sann­gjarnar skaða­bætur og styðja við og bæta fólki mann­rétt­inda­brotin sem það hefur sætt vegna lofts­lags­vá­ar­innar.
  • Að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis í stað þess að treysta á mótvægisaðgerðir sem einungis fresta loftslagsaðgerðum og kunna að hafa neikvæð áhrif á mannréttindi. Ríki heims verða að hafna öllu fjölþjóðlegu fyrirkomulagi í kolefnisviðskiptum sem ekki leiða til raunverulegs samdráttar í kolefnislosun og taka ekki tillit til verndunar mannréttinda.
  • Að innleiða nýja aðgerðaáætlun (e. Action for Climate Empowerment (ACE) Work Programme) um fræðslu, þátttöku og aðgang almennings að upplýsingum um áhrif loftslagsbreytinga, sem styður við skilvirka innleiðingu á mannréttindamiðaðri stefnu í loftslagsmálum.
Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.