Egyptaland: Fjöldi fólks sett í varðhald fyrir að segja skoðanir sínar

Egypsk yfirvöld hafa handtekið tugi einstaklinga í einni verstu aðför síðari tíma að tjáningafrelsinu í landinu. Þeirra á meðal eru aðgerðasinnar, fjölmiðlafólk, stjórnmálafólk, knattspyrnuáhugafólk og listafólk.

Einstaklingar sem gagnrýna stjórnvöld eru ítrekað settir í varðhald án réttlátrar málsmeðferðar og í kjölfarið stimplaðir sem hryðjuverkamenn og glæpamenn í fjölmiðlum, einungis fyrir að tjá skoðanir sínar. Aðför að tjáningarfrelsi af þessari stærðargráðu hefur ekki sést í marga áratugi en hugrakkir einstaklingar halda áfram að tjá skoðanir sínar þrátt fyrir að eiga á hættu að verða handsamaðir.

Þann 9. maí 2018 birti Amal Fathy myndband á Facebook þar sem hún deildi reynslu sinni af kynferðislegri áreitni, vakti athygli á umfangi vandans í Egyptalandi og gagnrýndi stjórnvöld fyrir að vernda ekki konur. Hún gagnrýndi einnig stjórnvöld fyrir atlögu þeirra að mannréttindum, bág kjör í landinu og lélega opinbera þjónustu. Lögreglan réðst inn á heimili Amal að nóttu til þann 11. maí 2018, handtók hana og færði á lögreglustöð í Kaíró ásamt manni hennar, Mohamed Lofty og þriggja ára barni þeirra. Mál hennar var tekið fyrir í Bréf til bjargar lífi 2018.

Amal Fathy hefur verið leyst úr haldi en er þó á skilorði, þökk sé þrýstingi frá fólki um allan heim. Það sama á við um Haytham Mohamadeen fyrrverandi herferðarstjóra forseta Egyptalands og seinna talsmann stjórnarandstöðunnar.  Hann gagnrýndi stjórnvöld fyrir að hafa átt við úrslit þingkosninga í landinu og var handtekinn 27. maí 2018. Wael Abbas, bloggari sem var handtekinn 23. maí 2018 var einnig leystur úr haldi.

Skilorðsbundin lausn er ekki ásættanleg. Allir þessir einstaklingar eiga á hættu að vera ákærðir. Í öðru af tveimur dómsmálum gegn Amal Fathy var hún dæmd til tveggja ára fangelsisvistar. Hún þarf að mæta tvisvar í viku á lögreglustöð, í fjórar klukkustundir í senn og gæti verið fangelsuð aftur hvenær sem er.

Margir eru enn í haldi og er því nauðsynlegt að þrýsta áfram á egypsk stjórnvöld. Skrifaðu undir ákallið núna!

Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.