Fjöldahandtökur í Xinjiang

Í Xinjiang, sem er kínverskt sjálfstjórnarhérað Úígúra, eru að minnsta kosti 120 einstaklingar úr múslímskum minnihlutahópum í fangelsi án réttlátrar málsmeðferðar eða í fangabúðum. Mál þessara einstaklinga eru hluti af herferð Amnesty International þar sem kallað er eftir lausn fanga í Xinjiang héraði.

Mál þessara 120 einstaklinga eru þó aðeins hluti þeirra sem hafa verið teknir fanga í héraðinu síðan 2017. Amnesty International áætlar að jafnvel meira en ein milljón manns hafi verið í haldi yfirvalda síðan þá.

Kínversk yfirvöld hafa að yfirlögðu ráði herjað á múslímska minnihlutahópa í Xinjiang sem hafa sætt fjöldahandtökum, pyndingum og illri meðferð.

Kínversk yfirvöld verða að leysa úr haldi fólk sem fært hefur verið af geðþóttaástæðum í fangelsi og fangabúðir í Xinjiang-héraði.

Skrifaðu undir og krefstu þess að kínversk stjórnvöld leysi þennan hóp fólks í Xinjiang-héraði úr haldi.

Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.