Handtekin fyrir að tjá sig um kynferðisáreitni
Þann 9. maí síðastliðinn birti Amal Fathy myndband á Facebook þar sem hún deildi reynslu sinni af kynferðislegri áreitni, vakti athygli á umfangi vandans í Egyptalandi og gagnrýndi stjórnvöld fyrir að vernda ekki konur. Hún gagnrýndi einnig stjórnvöld fyrir atlögu þeirra að mannréttindum, bág kjör í landinu og lélega opinbera þjónustu.
Í kjölfarið var hún handtekin. Lögreglan réðst inn á heimili hennar að nóttu til þann 11. maí, handtók Amal og færði á lögreglustöð í Kaíró ásamt með manni hennar, Mohamed Lofty, og þriggja ára barni þeirra. Hann er fyrrverandi rannsakandi hjá Amnesty International og núverandi framkvæmdastjóri Egypsku mannréttindanefndarinnar. Mohamed og barnið voru látin laus úr haldi þremur klukkustundum síðar.
Saksóknarar skoðuðu mál hennar samdægurs og úrskurðuðu að henni skyldi haldið í varðhaldi í fimmtán daga í tengslum við rannsókn á ákæru fyrir að „birta myndband sem inniheldur falskar fréttir og gæti raskað almannareglu“. Daginn eftir var hún yfirheyrð vegna meintra tengsla við ungmennahreyfinguna 6. apríl og úrskurðuð í frekara varðhald vegna meintra tengsla við bannaðan hóp í Egyptalandi.
Amnesty International telur hana samviskufanga, sem haldið sé eingöngu vegna friðsamlegrar tjáningar skoðana sinna.
Krefðu stjórnvöld í Egyptalandi um að leysa Amal Fathy úr haldi strax
